Hlín - 01.01.1923, Síða 51
Hlin
49
Ekki er verklegu fræðslunnar síður þörf í bæjum og
kauptúnum þessa lands. — Aðstaðan er þar þægilegri
og hægra um vik að flestu leyti að koma þar upp sköl
um. — Margur ágætisskólinn hefir byrjað smátt með
örfáum nemendum og í leiguhíbýlum.
Pað er varla við að búast að unglingar, óþroskaðir og
óráðnir, eða lítt mentað fólk, þótt eldra sje, sje svo fund
víst á heppilegustu leiðirnar til mentunar, að ekki sje
þörf á að varða veginn fyrir það að minsta kosti.
það er siðferðisleg slcylda okkar, sem betur þykjumst
vita, að stuðla að því, að þeir, sem vilja nota tíma sinn
og fje til að mentast og mannast, eigi kost á hollri frœðslu.
Halldóra Bjarnadóttir,
Ytrieyjarskólinn. — Staðarfellsskólinn.
Flutt á landsfundi kvenna í Reykjavík 1923,
Pá er rætt var um það á síðasta Alþingi að stofna til
húsmæðraskólahalds á Staðarfelli í Dalasýslu og nota
erfðafje frú Herdísar Benediktsen til sama skóla eftii
óskum gefanda Staðarfellseignarinnar og loforði stjórnar-
innar, hreyfði atvinnumálaráðherra Klemens Jónsson og
nokkrir þingmenn því, að álitamál væri, hvort leyfilegt
væri að nota sjóðirin til skólahalds i þessurn stíl, þareó
4