Hlín - 01.01.1923, Blaðsíða 67
Hlin
Ö5
Ferðapistlar
eftir Ingibjörgu Ólafsson.
Kristilegt íjelag utigra kvenna, sem er í fjölda mðrgUm
deildmn víðsvegar um Norðurlönd, hefir stofnað til sam-
vinnu milli landanna, og var kosin nefnd manna í því
skyni að vinna fyrir það mál. — Eftir tilmælum þessarar
nefndar gerðist jeg ferðaritari eða ráðauautur fjelaganna
og verð því, samkvæmt stöðu minni og starfi, að vera
á sifeldu ferðalagi. *- Árið sem leið hefi jeg ferðast um
Svíþjóð og Finnland, þetta árið býst jeg aðallega við að
leggja leið mína um Noreg ög Danmörku.
Mjer var ekki ókunnugt um það við hvaða kjör svona
ferðalangur á að búa, því jeg hafði 3 árin áður ferðast
um Danmörku fyrir fjelögin þar í sömu erindagerðum.
Margt skrítið getur fyrir mann komið á svona ferða-
lagi, það er best að vera við öllu búin og ekki kippa
sjer upp við það, þótt ekki gangi alt að óskum.
Farartækin eru með ýmsu móti: járnbrautarlestir, gufu
skip, sleðar, mótorbátar, vagnar, bifreiðar og stundum
>hestar postulanna*. — Jeg held jeg hafi reynt flest far-
artæki nema loftskip og kafbáta. Og fólkið sem hýsir
rnann það eru: Prestar, stóreignamenn, hjúkrunarkonur,
biskupar, húsmenskufólk, sjómenn, bændur, kenslukonur,
saumakonur o. s. frv. Aðra nóttina gistir maður í kon-
unglegri höll með þernu á hverjum fingri, hina i fátæk
legum kofa þar sem alt fólkið sefur í sama herberginu.
Ekki dugar heldur að vera við eina fjöl feldur um
samkomuhús. Stundum eru samkomur haldnar i kirkj
unurn, stundum í ungmennafjel.húsum, i latinuskólum, í
hlöðum, i tjöldum, í kvennaskóluin, á sjúkrahúsum, í
5