Hlín - 01.01.1930, Blaðsíða 2
Kvennaskólinn á Blönduósi.
Kensla hefst í skólanum 25. sept. í haust og stendur til 20. júní.
Kent verður: Hússtjórn, vefnaður, ailskonar kvenfatasaumur og
önnur handavinua og karlmannafatasaumur í sjerstakri deild. —
{ bóklegu er aðai-áhersia lögð á íslensku og reikning.
Inntökuskilyrði í skólann eru þessi:
a. Að umsækjandi sje ekki yngri en 18 ára.
b. Að hann hafi engan næman sjúkdóm, sje hraustur og heilsu-
góður og sanni þetta með læknisvottorði.
c. Að hann hafi vottorð um góða hegðun.
d. Að helmingur af skólagjaldi og fæðisgjaldi sje greitt við inn-
töku, og ábyrgð sett fyrir eftirstöðvum.
e. Að umsækjandi sanni með vottorði, að hann hafi tekið fullnað-
arpróf samkvæmt fræðslulögum, ella gangi undir inntökupróf,
þegar hann kemur í skólann.
Skólagjald er 75 kr. um námstímann.
Nemendur hafa haft matarfjelag og skólinn sjer um allar nauðsynjar.
Skólinn leggur námsmeyjum til rúmstæði með dýnum. Annan
sængurfatnað verða þær að leggja sér til, svo og góðar hlífðarsvunt-
ur, handklæði og mundlínur (serviettur). — Æskilegt er að sem
flestir af nemendum hafi með sjer saumavjel. — Nemendur hafi
með sjer eina eða fleiri flíkur til að sníða upp úr eða gera við. Þeir
hafi og með sjer sálmabók, Passsíusálma og texta við íslenskt söngva-
safn. — Umsóknir um inntöku í skólann sendist formanni skóla-
stjórnarinnar, Þórarni Jónssyni á Hjaltabakka. Vefnaðarnámsskeið
verður að líkindum haldið vorið 1931. Námstími 6—8 vikur.
PRENTSMIÐJA
ODDS BJÖRNSSONAR
(stofnsett 1. Sept. 1901).
TAI.SÍMI 45. AKUHHYKI. PÓSTHÓLF 45.
Stærsta prentsmiðja utan Reykjavíkur.
Viðurkendur vandaður frágangur prent- • /U j
unar. Fyrstu verðlaun fyrir prentun á iðn- : ■'•••./:
• •!; \ •
sýningum á Akureyri árin 1906 og 1918. • 0 j •
Setjaravélar-stílsteypa og -setning.
Pantanir afgreiddar fljótt og vel.