Hlín - 01.01.1930, Page 66
64
HUn
Þetta munu verða ærin verkefni fyrst um sinn, og
mun engum dyljast, að þau yrðu íslenskum heimilum
til gagns og gengis, ef þau næðu fram að ganga, og
heimilin þarf að styðja og efla á allan hátt, því, eins
og nú standa sakir eru mörg .heimili í upplausn.
Nú verður það verkefni stjórnar og fulltrúa að skýra
mál þetta fyrir þeim samböndum, sem þegar eru til,
og hvetja þau til að ganga inn í Kvenfjelagasamband
íslands, og svo á hinn bóginn að leggja smiðshöggið á
þau sambönd, sem eru í stofnun eins og Kvenfjelaga-
samband Vestfjarða og Breiðfirska sambandið.
1 stjórn Kvenfjelagasambands íslands yoru þessar
konur kosnar:
Ragnhildur Pjetursdóttir, Háteigi, formaður.
Guðrún J. Briem, Tjarnargötu 28.
Guðrún Pjetursdóttir, Skólavörðustíg 11.
Varastjórn skipa:
Ásta Jónsdóttir, Reykjum í Mosfellssveit.
Halldóra Bjarnadóttir, Háteigi.
Marta Einarsdóttir, Laugavegi 20.
Stjórnin sótti um 15 þúsund króna fjárstyrk frá AI-
þingi til að koma ætlunarverkum sínum í framkvæmd,
en fjekk að þessu sinni einungis 2000 krónur. Var það
þó betra en ekki, með þessu viðurkennir Alþingi þó
tilverurjett Sambandsins, og bætir vonandi um síðar.
Þingmenn eru oft í vanda staddir, þegar á að skera
úr um veitingu smástyrkja til ýmislegrar starfsemi:
námsskeiða, umferðarkenslu, námsstyrkja o. s. frv.
Væri mun þægilegra fyrir þá að vísa styrkbeiðnum
þessum til kvennasambandsins, sem hefur fulltrúa um
land alt og því góð skilyrði til að þekkja ástæður og
staðhætti. Það hefur líka mikla þýðingu, að verklega
kenslan komi jafnt niður og sje leidd eftir föstu skipu-
lagi. Kvennaþingið, sem er skipað kosnum fulltrúum
frá öllu landinu og miðlar styrk þeim, sem Alþingi