Hlín - 01.01.1936, Síða 49
47
Hlin
Verkleg námsskeið. — Kvenfjelög, bæði í bæjum og
sveitum, hafa árum saman haft verkleg námsskeið af
ýmsu tæi, fyrir eldri og yngri og sýningar í sambandi
við þau, þetta.hefur aukið kunnáttu manna og sparað
mikið fje, kent mönnum að hjálpa sjer sjálfir. Þessi
starfsemi eykst með ári hverju. Óskandi væri, að fje-
lögin sæju sjer fært að gera eitthvað fyrir unglings-
drengi og karlmenn líka, þar sem atvinnuleysi er.
Húsmœðraskólar. — Kvenfjelögin hafa víðast haft
mikil afskifti af Húsmæðraskólunum og starfi þeirra
og stutt þá með ráðum og dáð. Þau þurfa að fylgjast
vel með starfi þeirra og bera fram ákveðnar tillögur og
óskir um stuðning þeirra, sjerstaklega að því er snert-
ir áhrif þeirra á ungu stúlkurnar (ekki síst um klæðn-
aðinn). Skólarnir hafa mikla ábyrgð og við verðum að
gera miklar kröfur til þeirra.
Barnaskólar. — Kvenfjelögin hafa víða mikil af-
skifti af barnaskólunum og er það vel farið, helst ættu
allar skóla- og fræðslunefndir að vera svo settar, að
hafa konu í stjórn sinni. Áhrifa kvenna í nefndum
þessum ætti meðal annars að gæta um kenslu í
handavinnu. Kvenfjelögin og allar konur landsins
þurfa að styðja það mál, að hentug handavinna verði
fáanleg í öllum barnaskólum landsins, sú fræðsla er
undirstaða að allri verklegri mentun þjóðarinnar.
Skýrslur. — Til þess að fá skýrt yfirlit um það, hve
mikið er framleitt af heimilisiðnaði í landinu árlega,
ættu konur að hlutast til um það, að hreppstjórar söfn-
uðu skýrslum um það, um leið og þeir safna öðrum
skýrslum. Halldóra Bjarnadóttir.
Bayeux-refillinn.
í bókasafni einu í Bayeux (Bajö) í Normandíi í
Frakklandi er geymdur merkilegur gripur, sem mikil