Hlín - 01.01.1936, Qupperneq 115
Hlín
113
25 ár. — Og í öðru lagi vakti það fyrir okkur, með því
að bjóða ykkur hingað, konunum úr þessum 3 sveitum
í kring, að við fengjum gott tækifæri „að hittast og
sjást og talast við,“ og opna með því nýjar leiðir til ,
meiri kynningar, meiri skilnings, meira samstarfs í
framtíðinni. —
Við hefðum svo gjarnan viljað skemta ykkur eftir
bestu föngum, en til þess eru lítil efni fyrir höndum.
Reyndum að útvega fyrirlesara, sem ekki fengust, og
sömuleiðis söng, en þrátt fyrir það getur þetta gengið
vel, ef við höfum gleðina með okkur að heiman og við
miðlum þar hvert öðru af. — Bændurnir tala um sum-
arið liðna, heyskapinn, og hvað fjeð er fallegt í heið-
inni. (En minnast bara ekki á kreppuna!) Konurnar
tala um búskapinn, börnin — og kýrnar. — Og bless-
að unga fólkið reynir líklega að nota fæturna — og
augun, og — það bannar enginn — í dag! —
Það virðist eiga vel við einmitt á 25 ára afmæli K.
Ö., að líta yfir liðnu árin, og segja ykkur með fáum
orðum sögu afmælisbarnsins. — Það er stofnað sunnu-
daginn 25. ágúst 1907 á Skinnastað, og mættu þá aðeins
6 konur. Vil jeg leyfa mjer að minnast sjerstaklega
Svöfu Þórleifsdóttur, sem aðalstofnanda og fyrsta for-
manns í mörg ár, með innilegri þökk fyrir unnið starf.
Kennarinn og brautryðjandinn okkar ástsæli, sem bar
uppi alt fjelagslíf hjer í sveit, þar til hún fluttist burtu.
En hugmyndin um stofnun þessa fjelags mun komið
hafa frá Jóhönnu Pálsdóttur, Austara-Landi, sem var
fyrsti fjehirðir þess. Ein okkar vinsælasta og ágætasta
kona, sem sveit vor hefur alið, og starfaði hún í því
meðan hennar naut við. — Sigurveig Björnsdóttir,
Hafrafellstungu var kosin fyrsti skrifari fjelagsins og
hefur æ síðan verið ein hin ötulasta í þess starfi, er nú
formaður þess og stjórnar þessari samkomu hjer í dag.
Hinar konurnar voru Kristveig í Skógum, Margrjet
8