Hlín - 01.01.1936, Qupperneq 127
125
tilín
spunavjelum, prjónavjelum og vefstólum. Hafa allar deildir nú
þegar eignast tvíbreiða vefstóla, sem ganga á milli heimila eftir
óskum og þörfum.
Búnaðarsamband sýslunnar, sem vill styrkja tóvinnufram-
leiðslu í hjeraðinu, hefur veitt kvenfjelaginu á þessum síðustu
3 árum um 1400 kr. og hefur sá styrkur einkum verið veittur til
að kaupa þessi verkfæri. —
Sveitakona, shrífar: Jeg hef veitt því eftirtekt, að margar
sveitakonur kvarta um þreytu í fótunum og hafa jafnvel sár á
fótum, sem háir þeim mikið á ýmsan hátt. — Þegar jeg byrjaði
að búa með æðimargt fólk og þrotlausa snúninga, datt mjer í
hug- að hafa stól í búrinu og sitja við tiltekt á mat, smurningar
og mörg önnur verk. Þetta ráð held jeg hafi bjargað mjer frá
fótaveiki, auk þess að jeg hafði aldrei steypt gólf að ganga á,
sem jeg heyri að fari illa með fæturna. M.
Kona á Vesturlandi slcrifar: Jeg hef oft heyrt að konum fynd-
ist mjög erfitt að koma ullinni sinni í vaðmál og er það nú að
vísu, en mikið má góður vilji, og þar sem spunavjelar eru nú
orðnar svo algengar i sveitunum, finst mjer það einmitt sú besta
hjálp við vfcfnaðinn. Við þurfum að nota þær eftir megni og láta
spinna lopann í þeim, til þess að geta varið þeim tíma til að
vefa, sem við annars myndum þurfa til að spinna.
Mig langar a.ð segja svolítið dæmi af konu, sem jeg þekki, og
sem hefur mikinn áhuga á vefnaði. — Þegar haustannir voru
úti, ljet hún spinna lopann sinn í spunavjel, setti strax upp vef
og óf í buxur á bónda sinn og son, og eftir rúma viku voru þeir
komnir í buxurnar. Reyndar var þetta efni ekki fínt verk, en
það var ágætt í slitföt á menn við skepnuhirðingu og þvíumlíkt.
Af þessari konu finst mjer við, sem höfum ráð á ullinni, get-
um mikið læi-t, að nota ha.na sem mest í vaðmál, því eftir minni
reynslu eru vaðmálsfötin bæði hlý, hentug og haldgóð til slits.
— Jeg vildi óska, að sem flestar sveitakonur hjeldu áfram þeim
gamla og góða sið að koma sjer upp vaðmáli í slitföt á menn
sína og syni, en nota minna verkamannafötin. /.
Barnagæla.
Kenna vil jeg þjer kvæði, kæri minn son,
að lærirðu, skiljirðu, lífs er það von.
Að lærirðu, skiljirðu, list er það fyrst
að elska þinn skapara og Jesúm Krist.
Að elska þinn skapara og anda helgan,