Merki krossins - 01.01.1926, Qupperneq 12

Merki krossins - 01.01.1926, Qupperneq 12
ér einkum andlegs eðlis og bundið andlegum efnum. Enda sannar Drottinn Kristur það sjálfur, með allri framkomu sinni. Það var villuskoðun Qyðinga, og jafnvel sjálfra hinna helgu postula, að hlutverk Messíasar væri það, að berjast til sigurs fyrir frelsi þjóðar sinnar og endurreisa Israelsríki. En þessari hégómlegu ímyndun og eftirvænting sló Frelsarinn oftar en eitt skifti frá sér. Svipað átti sér stað, þegar lýðurinn í undrun og aðdáun þyrptist að honum, og ætlaði að kalla hann til konungs. Þá vék hann sér undan þessum veg og valdi með því að flýja og fela sig. Og að síðustu sagði hann fyrir framan dómstól rómverska land- stjórans, að »sitt ríki væri ekki þessa heims«. Um þetta ííki Krists er þannig rætt í guðspjöllunum, að mönnum beri að búa sig undir inngöngu í það með yfirbót, en að trúin og skírnin séu nauðsyn- legar til þess að komast inn. Skírnin er að vísu ytri athöfn, en þó jafnhliða táknar og veldur hún innri endurfæðing. Þetta ríki Krists stendur í beinni and- stöðu við ríki Satans og vald myrkranna. Það heimtar af þegnum sínum, að þeir fægi af hjarta sínu hverja þrá til jarðargæða, en leggi kapp á kærleik og mildi, jafnframt því sem þá hungrar og þyrstir eflir réttlætinu. En samhliða þessu eiga þeir að afneita sjálfum sér og bera sinn kross. Kristur hefir með endurlausninni unnið kirkjuna undir sitt vald með heilögu blóði sínu. En með prests-embætti sínu hefir Hann fórnað sjálfum sér, og fórnar sér ennþá óaflátlega fyrir syndir mannanna. Er þá ekki augljóst, að þættir og eðlisdrættir beggja þessara hátignu starfa, liggja fólgnir í konungsveldi hans? Annars færi sá illa villur vegar, sem ætlaði sér að draga af manninum ]esú Kristi, vald yfir hverju veraldlegu máli sem vera skyldi. Því frá Föður sínum fékk Hann í öndverðu óskoruð yfirráð allrar skepnu, svo að hver einn hlutur á himni og jörðu er undirgefinn geðþekkni hans. Alt að einu forðaðist Kristur, á jarðlífsdögum sínum, að sýna veldi silt og tignarrétt á nokkurn hátt. Hann fyrirleit öll heimsgæði og skifti sér ekkert af eignarhlutum mannanna. En bæði á þeim tímum og á vorum dögum leyfir Hann þeim, sem hlutina eiga, að halda fullum rétti sínum á þeim. Hér falla vel við fögur orð eins sálmaskálds kirkjunnar frá fyrri tíðum: »Sá heimtar ei þinn háa stól, (Heródesar), sem heimsins verður náðarsól«, og veitir sjálfur með mildri hendi himinborin konungsdæmi. Konungsdæmi Krists nær til allra manna og al/ra tíða. Eins og sagt hefir verið, nær drottinvald Frelsara vors til allra manna. Vér tökum því orð hins afburðamikla fyrirrennara Vors, Leós páfa XIII., Oss í munn: »Það er langt frá því, að ríki Krists sé einskorðað við kaþólskar þjóðir, — ellegar þær, sem eru lögleg eign kirkjunnar með skírninni, þótt þær hafi lent á villu- brautum vegna rangra skoðana, eða sakir sundurlyndis skilið við kærleikann. En ráðvöld Hans nema einnig yfir alla þá, sem jafnvel eiga alls engan þátt í krist- inni trú. Og stendur því allt mannkynið í raun og veru undir valdi ]esú Krists*. Þetta nær alveg jafnt til einstaklinga sem landsdeilda og mannflokka; því þótt mennirnir hafi slegið sér saman og myndað þegnskyldu-héruð, þá standa þessar sambandsdeildir engu síður undir ráðveldi ]esú Krists, heldur en hver einstakur maður, því heill einstaklingsins og heill þjóðfélagsins standa alveg á sama grunni. Merki krossins. 12 —

x

Merki krossins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Merki krossins
https://timarit.is/publication/611

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.