Merki krossins - 01.01.1926, Blaðsíða 16

Merki krossins - 01.01.1926, Blaðsíða 16
Kardinálar tveir. Mikill viðburður þótti það, er Vil- hjálmur kardináli kom til Noregs árið 1247. Sturlunga segir: »1 þenna tíma kom legatus herra páfans til Noregs er Vilhjálmur hét þess erindis að kóróna Hákon konung ok Margrétu drotningu ok marga aðra góða hluti framdi hann þar. Hann vígði Heinrek biskup til staðarins að Hólurn í HjaltadaU. Sturla skáld Þórðarson getur Vil- hjálms kardinála í hrynhendu þeirri er hann orti um Hákon konung og er þetta upphaf að: „Fraegjan réð þik Vilhjálmur vígja, varr báls hötuðr kardináli; engi valdiz jafngóðr hingað, aldargramur, af páfavaldi; kórónu lét kristni stýrir kynprýddur jöfur yður of skrýdda ramri grund hafit ríkisvandar reiðivaldur með fraegðum haldit." Auðsætt er af orðum Sturlu, að ást- sældir Vilhjálms kardinála hafa miklar verið í Noregi. Sturla telur það í upp- hafi til sæmdar konungi að hafa verið vígður undir kórónu af Vilhjálmi kar- dinála. En eigi er sæmd sú síðri íslandi er því hlotnaðist með heimsókn Vil- hjálms kardinála van Rossum sumarið 1923. Það vakti geisilega athygli víða um heim, er það spurðist, að van Rossum kardináli byggist til íslandsfarar. í aug- um kaþólskra þjóða hlaut land það að vera mikils virði, er jafntiginn embættis- maður heilagrar kirkju, sem van Rossum kardináli er, vildi heiðra með einka- heimsókn sinni. Um gjörvöll lönd eru slíkar heimsóknir metnar að verðleikum og skoðast hin mesta sæmd þeim er fyrir verður. Sumarið eftir að kardináli kom hingað til lands, sótti hann Holland heim. Við það tækifæri sigldu tvö hundruð skipa fánum skrýdd í móti skipi kardinála til að fagna honum. Eftir þessu fóru önnur hátíðahöld þar í landi í tilefni af komu kardinála. Vilhjálmur kardináli van Rossum sté hér á land 8. júlí 1923. Öll framkoma þáverandi stjórnarvalda við það tæki- færi var landi voru til vegs og sóma. I erlendum blöðum var þessa minst lofsamlega, en einkum þó í hollenzk- um blöðum, því kardinálinn er Hollend- ingur að ætterni. Eift stórblað þar í landi mintist móttökunnar hér undir yfirskrift þessari: Islandia docet (ísland kennir mönnum að haga sér). Þjóð vorri til sæmdar, í tilefni af komu sinni, gjörði van Rossum kar- dináli Island að sjálfsfæðu postullegu prefektsdæmi. Stefán frá Hvítadal. Merki krossins. 16

x

Merki krossins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Merki krossins
https://timarit.is/publication/611

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.