Merki krossins - 01.01.1926, Blaðsíða 24

Merki krossins - 01.01.1926, Blaðsíða 24
ungis Droitnari vor, heldur er hann einnig besti vinur vor og velgjörari. Hann fórnaði lífi sínu á smánartré af- brotamanna, og af kærleik til vor leyfði hann Longiusi að leggja spjóti í síðu sína og að stinga hjarta sitt í gegn. Sé Jesús sannur Guð og Lausnari heimsins, þá er kenning hans og boð skuldbindandi fyrir alla menn. Sem al- valdur Guð, æðsti kennari og löggjafi sendir hann postula sína út um allan heim og segir: »Alt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið og kennið öllum þjóðum . . . . og kennið þeim að halda alt það, sem ég hef boðið yður« (Matth. 28. 19. 20). Allar þjóðir jarðarinnar verða að taka á móti kenningu hans; allar þjóðir verða að halda alt það, sem hann, hinn almáttugj Guð hefir fyrirskipað. En á meðan menn ekki viðurkenna og játa af fullri sannfæringu og bjargfastri trú að Jesús Kristur sé sannur Guð, geta þeir heldur ekki skoðað kenningu og boð Jesú sem skuldbindandi fyrir alla menn. — Sé Jesús Kristur sannur Guð, sem kominn er í heiminn til þess að kenna oss hinn eilífa sannleik, þá verður og sérhver maður að trúa orðum hans og hlýða boðum hans. Grundvallarkenning kaþólsku kirkj- unnar á öllum tímum og í öllum löndum er þessi: Jesús er sannur Guð, sem hefir endurleyst heiminn með dauða sínum á krossinum. Hin kaþólska kirkja hefir á öllum öldum og um gjörvallan heim, kent að Jesús Kristur sé hinn eingetni Sonur Föðurins, sannur Guð af sönnum Guði. Þennan háleita leyndardóm hafa postul- arnir boðað heiminum, fyrir þennan sannleik hafa þeir þolað hinar sárustu kvalir og fórnað jafnvel lífi sínu. Þús- undir píslarvotta hafa fylgt dæmi post- ulanna, þeir vildu heldur líða allskonar ofsóknir og hinn kvalafylsta dauða, en að afneita trú sinni á Guðdóm Jesú Krist. Þegar Arius neitaði því, að Frels- arinn væri sameðlis Föðurnum, þá reis allur hinn kaþólski heimur gegn Ariusi og fylgismönnum hans og á hinu al- menna kirkjuþingi í Nikeu, 325, var kenning Ariusar dæmd villa og allir sem neituðu trúarjátningu um guðdóm Jesú Krists, urðu að fara úr kirkjunni. Þegar nýmælaskörungar vorra tíma vilja boða heiminum nýjan Krist, sviftan öllu því sem guðdómlegt og yfirnáttúr- legt er, þá ráðast þeir á sjálfan grund- völl kristindómsins, sem sé á guðdóm Jesú Krists. Það var aftur kaþólska kirkjan, sem fyrir munn Piusar páfa hins tíunda, hóf raust sína og sendi út um allan heim hið nafnfræga varnarrit (Encyclica frá 7. september 1907), um guðdómlegan uppruna hinnar kristnu trúar. Þá reis kirkjan upp til þess að vernda guðdómseðli Sonarins, og þá sagði kirkjan við öll börn sín hið sama sem hún á öllum öldum hefir sagt þeim: Enginn gefur verið meðlimur kirkjunnar nema hann játi hið yfirnáttúrlega og guðdómlega í persónu Jesú Krists, eng- inn, nema hann viðurkenni guðdóms- eðli hans. Þannig mun kirkjan vernda guðdómseðli Jesú Krists til enda ver- aldarinnar, því svifti menn Krist guð- dómsljóma hans, þá verður kristindóm- urinn helber hégómi. Getur nú kirkjan með skýrum rökum sannað kenning sína um og trú sína á guðdómseðli Krists? Ekkert er auð- veldara en það, því öll guðspjöllin frá upphafi til enda eru óslitin og óræk sönnun guðdómlegrar hátignar Frelsara vors. — I.VitnisburðurFrelsaransumsjálfansig. Jesú Kristur segir um sjálfan sig: *Ég Merki krossins. — 24 —

x

Merki krossins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Merki krossins
https://timarit.is/publication/611

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.