Merki krossins - 01.01.1926, Qupperneq 20
Guðlegt veldi giftu alda
gisti þjóð við höfin yztu,
bar oss Róma bláan himin,
blessaði oss í dýrri messu.
Reisti stoðir Róma traustar
ríki því, er hófst án líka;
auðnu saga Islands þjóðar
yrkir sæmdir Róma-kirkju.
Hlymja alda hengiflaumar,
hlakka þyrstir gýgjar blakkar,
falla þráreip feigum öllum,
fitjungar í náttstað vilja,
sókndeig hrör úr sessi þoka,
sveitir ungar bekkja leita,
hrynja log um halla vígi;
helgum dómi yppir Róma.
Sundli þá, er verkin vanda
vítisdökkum glóðasnýti,
öndvert Drottins inni standa,
illúð rammri heiminn fylla,
hreppnir nóg, er óðlát yppast
eiðaspjöll á hengileiðum,
mílskubýtar dvala dælskum,
draga öfga, sefa göfgi.
Brysti á hregg úr bólstra muggu,
brunnu skært úr heimi sunnan
nítján alda nátta vitar
— nöfnin Drottins höfuðvotta.
Reis gegn illum rökkurþysi
Róma dýrstur aldasómi,
efsta kallið, alheimsgiftan,
eilífa borgin þjóðar torga.
Glæst hún stóð af Guði traustust,
geislaskálm og sigurhjálmur,
heillabæn í heimsins villu,
helgistjarna foldarbarni.
Róma kyndir eins og endur
eldinn helga jarðarveldi;
brenna Drottins björtu ranni
bál van Rossums kardínála.
Víða sótti vökuglæðir,
»varrbáls hötuðr kardínáli«;
falinn hásögn frelsismála
fór með boðum aldaroðans,
(vegsemd æðsta valdi þegin,
verðugum afbragðs heimangerðir).
Komufagur kristnum heimi,
kirkjuljósið suður-ósa.
Austurríki ítur gisti,
eigi týnist hylli Vínar;
keisari lands að kveðju sendi
kærum gesti vagn og hesta:
fákar átta fylkis drótta
fyrir kunnum vagni runnu.
Allir hrósa öðlings snilli;
öldin lýtur drottni völdum.
Holland fagnar hirði signdum,
(háu skauta viggjabrautir),
hundruð eika heiman rekur
hjallann upp til svanafjalla;
hyllir þjóð á hranna-velli
heiðfrömuð og snýr til leiðar;
aringlæður ítrum býður
öldin teit og borgar leitar.
Merki krossins.
— 20 —