Merki krossins - 01.01.1926, Side 23
hann talar um Jesús: »Ekki er hjálp-
ræði í neinum öðrum, því að eigi er
heldur annað nafn undir himninum, er
menn kunna að nefna, er oss sé ætlað
að verða sáluhólpnir í« (Postulasaga 4.12).
Hjarta mannsins þráir frið og sælu
eins og hindin þráir vatnslindir (S. 41. 1).
En friður og sæla finnast hvergi nema
hjá honum, sem hefir sagt: »Eg er
vegurinn, sannleikurinn og Iífið«, og um
hann segir postulinn »hann er friður
vor«. Gyðingarnir krossfestu hann eins
og morðingja, en deyjandi deyddi hann
dauðann og veitti mönnum eilífa lífið.
»Hann gaf sjálfan sig til lausnargjalds
fyrir alla menn« (Kor. II. 5. 15).
Jesús Kristur er sannur Guð og
Frelsari heimsins, sem Guð hefir hann
skapað oss alla og sem Guðmaður hefir
hann endurleyst oss alla og þess vegna
hefir hann einn rétt til að drottna yfir
hjörtum mannanna. Allir menn verða
því að tilbiðja hann.
Ég sagði áður, hjarta mannsins þráir
frið og sælu, en frið og sælu finnum
vér einungis í Jesú svo framarlega vér
trúum á guðdóm hans og endurlausn-
arverk.
Vér viljum enga falsmynd, enga skrípa-
mynd af Frelsaranum hafa, hin sanna
mynd hans verður að Ijóma í dýrðar-
geislum guðdómsins. Nú á dögum eru
þeir menn til, sem búa til afskræmi af
Frelsaranum og þeir eru langtum skað-
legri en hinir grimmu fjandmenn lið-
inna alda, sem ofsóttu fylgjendur Jesú
Krists með því að úthella blóði þeirra;
en blóðugar ofsóknir skaða ekki kirkjuna,
þvert á móti vex og þróast kirkjan best
í blóði píslarvottanna. Menn ráðast ekki
á sjálfa persónu Krists, nei, öðru nær,
árásirnar á vorum dögum eru langtum
skaðlegri. Væru árásir gerðar beint á
persónu Jesú Krists sjálfs, þá mundu
flestir menn fyrirlíta slíkar árásir og fara
að elska Frelsarann ennþá innilegar.
Fjandmenn Krists nú á vorum dögum,
Iýsa persónu hans eins og þeir væru
lærisveinar hans eða vinir. Kristur, segja
þeir, er hinn göfugasti maður, sem
nokkurn tíma hefir lifað hér á jörðunni,
hann er hinn mikli mannvinur, mildi
hans og kærleikur, líferni hans og
dygðir eru svo dásamlegar, að öll dygð
annara manna bliknar við samanburð
á því.
Þeir lýsa honum sem besta löggjafa.
Já, vissulega er Kristur alt þetta. En
væri hann ekki annað en þetta, þá væri
hann einungis óbreyttur maður. Fjand-
menn Krists skipa honum á bekk með
mikilmennum heimsins eða villutrúar-
foringjum, en um Guðdóm hans vilja
þeir ekki heyra talað; það sem guðspjöllin
greina um guðdómlegt eðli Krists,
kveða þeir misskilning vera. Og þess
vegna sjáum vér því miður í tímaritum
og blöðum, sem dreift er út um alt land,
að Jesú er skipað á bekk með Con-
fúsíusi, Búdda, Múhameði og fleirum.
Þetta er háðung og guðlast.
Vér, sem tilbiðjum Jesúm sem Guð
vorn, vér mótmælum því allir, að menn
skipi Jesú á bekk með villutrúarmönnum
eða mikilmennum heimsins; sæti hans
er í hásæti guðdómsins; og um Jesúm
skrifar Páll postuli: »Guð hefir hátt
upp hafið hann og gefið honum nafnið,
sem öllum nöfnum er æðra, til þess að
hvert kné skuli beygja sig fyrir Jesú
nafni, þeirra sem eru á himni, og þeirra
sem eru á jörðu og þeirra sem undir
jörðunni eru, og sérhver tunga viður-
kenni að Jesús Kristur er Drottinn í
dýrð Guðs Föður« (Fíl. 2. 9).
Já, Jesús er Drottinn, Drottinn vor,
hann einn hefir rétt til að drottna yfir
hjörtum vorum. En hann er ekki ein-
— 23 —
Merki krossins.