Sumarblómið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sumarblómið - 01.01.1921, Qupperneq 6

Sumarblómið - 01.01.1921, Qupperneq 6
4 Sumarblómib upp úr deyfðar- og dáðleysisdikinu inn á sólskinsgrundri framtíðarlandsins.« — Fyrir hjálp góðra nianna komst liann í skóla, og hann var svo glaður yfir því, að honum virt- ust vonirnar sínar vera að rætast. En alt í einu syrti að og á skaniri stundu dró fyrir gleðisól hans. — Nú var heilsan biluð og kraftarnir þrotnir — og fögru framtíðar- vonirnar — þær voru brostnar. Fannig lá hann einn, já, aleinn, í litla þakherberginu sínu og hugsaði um hverful- leik lífsins. Hann mintist bernskuáranna, morguns lífsins, þegar hann naut móðurblíðunnar og barnaleikjanna. Hann mintist fermingardagsins, þegar hann vann eiða fyrir altari Drottins. Hafði liann haldið þá eiða? Hafði hann ekki lifað í andvaraleysi heimsins? — Hafði hann ekki gengið eftir girndum sínum og sóað frístundum sínum í glaumi og gleði heimsins barna? — Jú, það hafði hann gert. — Hafði hann helgað Guði nokkurt augnablik af lífi sínu? Nei, það hafði hann ekki gert; en þó hafði Guð verið honum svo góður. Og hann fór að hugsa um gæsku Guðs til sín; hann hafði stöðugt brotið á móti Guðs vilja og á móti því heiti, sem hann hafði unnið honum, en þó hafði Guð borið mikla umhyggju fyrir honum og leitt hann hjá öllum hættum og þjáningum. Hann mintist margra atvika úr lífi sínu, sem honum fundust óskiljanleg, en sem nú skýrðust fyrir honum og sem hann nú fann, að Guð hafði verið honum nálægur. — — Hann lokaði augunum, krosslagði hendurnar á brjósti sér og heit og innileg bæn steig upp til Guðs, bæn um fyrirgefningu og náð. Og Guð, sem rekur eng- an á burtu frá sér, sem til hans kemur iðrandi og auð- mjúkur, heyrði hið veika bænarkvak. Sár vonbrigðanna

x

Sumarblómið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumarblómið
https://timarit.is/publication/614

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.