Sumarblómið - 01.01.1921, Side 9
Sumarblómið
7
Tlminn er lifsins bók, sem sumir sækja í mikinn vís-
dóm, og sem hinir hygnu lesa með athygli, vitandi það,
að þeir geta að eins lesið hana einu sinni, en sem aðrir
iáta rótlausa og deyja sem heimskingjar.
Tíminn ir llfsins iré, sem nokkrir tína af góða, nær-
andi ávexti, meðan aðrir Iiggja og sofa í skuggum þess,
og deyja úr hungri.
Timinn er lifsins stigi, sem nokkrir ganga upp eftir til
réttlætis, heiðurs og dýrðar, meðan aðrir stíga niður til
smánar og niðurlægingar.
Tíminn er lifsins braut, sem nokkrir ganga eftir til dýrð-
legrar eilífðar, meðan aðrir missa sjónar af takmarkinu og
enda skeið sitt í vonbrigðum og tapi.
Tíminn er sáðiið lifsins, sem er af nokkrum dyggilega
notaður til að sá góðu sæði, meðan aðrir sá illgresi,
gleymandi því, að þeir eilíflega munu uppskera það,
sem þeir sá.
Timinn er auður lifsins, og verður fyrir okkur einungis
það, sem við notum hann til, við að nota hann annað-
hvort til gagns og blessunar fyrir sjálfa okkur og aðra —
eða til bölvunar.
Vinur! Minstu þess, að tíminn líður fljótt, og brátt
hverfum við inn fyrir fortjald dauðans — hvert verður
svo þitt hlutskifti? Himnaríki eða helvíti?
fÞýtt).