Sumarblómið - 01.01.1921, Page 16

Sumarblómið - 01.01.1921, Page 16
14 Siimarbtómib eð hann hafði ekki átt það skilið, að honum væri vikið frá, tók hann það ekki nærri sér, og kunni vel við sinn nýja lífernishátt. Konungurinn, sem mat mikils gáfur hans, og saknaði hans, leitaði hann uppi og bað hann að koma aftur til hirðarinnar. En ráðgjafinn neitaði því og sagði: íÞú hófst mig til æðstu tignar; með þreklyndi bar eg þá erfiðismuni, sem henni voru samfara; þú hefir neytt mig til að draga mig í hlé; nú hefi eg næði, lofaðu mér að halda því. — Að draga sig í hlé frá heiminum, er að svifta villidýrið tönnum þess, illmennið morðhníf hans og höggorminn tungu hans«. Konungurinn lagði að honum. »Eg þarf skynsaman og ráðvandan mann«, sagði hann, »sem getur hjálpað mér til að bera valdabyrðina, og eg fæ engan færari til þess en þig«. »þú munt finna ein- hvern«, svaraði ráðgjafinn honum, »ef þú leitar meðal þeirra, sem ekki leita þín«. Grænlendingurínn og krístniboðinn. Ungur, röskur Grænlendingur ferðaðist einhverju sinni yfir fjöllin með hinum nafnkunna kristniboða Kranz, sem hafði verið verkfæri í Guðs hendi til að snúa honum frá myrkri heiðninnar. Það var indæl morgunstund; sólin lyfti sér hátignarleg upp yfir fjallatindana, sem eins og sveim- uðu milli himins og jarðar í Ijómandi purpurafegurð. Inni- lega hrærður í huga og gagntekinn af tilfinningum sínum,

x

Sumarblómið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sumarblómið
https://timarit.is/publication/614

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.