Dvöl - 21.01.1934, Blaðsíða 6
4
D V
Ö L
21. jan. 1934
beinum línum og sléttum flötum.
Og inni í þeim mun það ekki
hafa hógleg hægindi, postulíns-
hunda né „Samlede Værker“ við-
urkenndra höfunda (sem, ef til
vill hafa ekki öll verið lesin).,
heldur óbrotna húsmuni úr stáli,
útvarp, kvikmyndarit og bækur
um tækni og félagsmál (sem, ef
til vill. verða ekki heldur lesin
öll). Þar tísta ekki kanarifuglar,
heldur ryksugur. — En þar vaxa
ekki rósir í gluggum, — heldur
kaktusar. — Og loks verður þetta
fólk aldrað í funkishúsunum og
hneykslast á ungdóminum, sem
vill eitthvað annað.
Unga fólkið er stundum erfitt,
en aldrei leiðinlegt. Mér þykir
vænt um það, og ég trúi á það,
eins og ég trúi á framtíðina og
hinn nýja tíma, sem það tilheyr-
ir. — Jafnframt hefir það ýmsa
ágalla. Hvaða kynslóð hefir ekki
haft þá? En þeir sem dæma æsk-
una, — og það heyri eg marga
gera, nú eins og jafnan áður, —
verða fyrst að muna til sinna
ungu daga og þar næst að gæta
þess, að dómur um unga fólkið
er dómur um eldri kynslóðina og
hæfni hennar til uppeldis. —
Hver kynslóð ber merki þess upp-
eldis, sem hún fær, og aðeins
heilbrigt þjóðfélag með hreinþró-
uðum mönnum eignast hrausta,
prúða og hamingjusama æsku.—
Pálmi Hannesson.
I
Jólin og hún móðir mín.
Yndislega móðir mín!
Á morgun, þegar sólin skin,
ég ætla að setja upp jólalín
og ég ætla að hoppa i bóli þín,
því nú er ég ungur í annað sipn
og upplyfti tungu í himininn.
Ég ]>ekkti þig lítið, móðir rniín!
En mér er svo ört og heitt til þín
og því býr ástarþörf mín enn
til þín, með trú á guð og menn,
í minni ungu söngvasál
með sorg í hjarta og englamál.
Þitt hjarta skalf og hafði rétt
við liimins lög á jörðu sett -
þú máttir eiga og elska mig,
sem aldrei mátti leiða þig,
svo hönd mín átti ekkert hald
og æslcan týndist guði á vald.
í suðurlanda sól þú bjóst.
í sorg af norðurhjara dóst.
Nú fæ ég aðeins þakkað þér
með þessum snauðu línum hér:
ég elska þina mildu mynd
af móðurtryggð og ástarsynd.
Nri halda jólin hér í garð. —
Þótt hlaði snjó í Vonarskarð
á ég friðarfró og hlé
og fagurt skraut á jólatré
j