Dvöl - 21.01.1934, Side 15
21. jan. 1934
D V ö L
13
tslenzkar sagnir og kveðlingar
E>áttur frá Jóni á Hellu, Jóni í Skógum og
Jóni Eggertssyni.
Eftír Gísla Konrádsson.
[þáttur þessi er prentaður eftir eig-
inhandarriti Gisla Konráðssonar i JS.
301, 4to. Þeir nafnar, Jón i Skógum og
Jón á Hellu, voru nafnkunnir á sinni
tið, og eru nokkrar sagnir um galdra-
glettingar þeirra i þjóðsögum Jóns Árna-
sonar og víðar. Jón Eggertsson frá ökr-
um er nafnfrægur fyrir málaferli sin og
deilur við ýmsa höfðingja. Hann var og
sakaður um galdur, og kom það mál fyr-
ir Alþingi. — Jón fæddist á ökrum i
Skagafirði 1643. Var Eggert faðir hans
sonarsonur Magnúsar prúða. Hann
drukknaði i Héraðsvötnum 1656 eins og
frá segir í þælti þessum. Jón var stór-
örotinn gáfumaður, en lenti snemma i
málaferlum og þótti harður viðskiptis.
Talsvert er til af kveðskap eftir Jón,
rímur og kvæði, þar á meðal allmergj-
uð niðkvæði um óvini hans. Jón fór oft
utan til að berjast fyrir málum sínum
og sat um hrið i fangelsi í Kaupmanna-
höfn. Árið 1689 fór hann til Sviþjóðar.
Hafði hann áður útvegað Svíum nokkuð
af handritum frá íslandi og fékk þvi
góðar viðtökur. Eru ýms merk handrit,
sem nú eru i Stokkhólmssafni, keypt
þangað af Jóni Eggertssyni. Sagt er, að
hann liafi verið skipaður borgarstjóri i
Malmö, en dáið áður en hann tæki við þvi
embætti. Hann dó í Stoklthólmi 1689 og
var jarðaður á kostnað konungs.l
1. Frá Illuga presti.
Illugi hét préstur, Helgason, er
hélt Stað í Kinn norður. Hann
var détturson Illuga prests í
Múla, Guðiuundssonar, er þar
bjó fram yfir 1580. Þeir Illugi
prestur á Stað í Kinn og Sigurð-
ur prestur .Tónsson sálmaskáld í
Presthólum voru systrasynir. —
Illugi prestur komst í ljótt mál.
Hýddi hann stelpur tvær í kirkju
við tíðir og fletti þær fötum, og
voru kveðnar um háðvísur. Kom
]>að mál til biskups. Ritaði hann
siðan þeim Hrólfssonum, Þor-
bergi á Seilu og Sigurði á Víði-
mýri í Skagafirði, er þá höfðu
Þingeyj arþing. (Ekki hefi eg séð
skjallega, hversu máli því lauk,
en i sögnum er, að hann missti
prestsskap og byggi síðan að
Arnarvatni við Mývatn, og væri
sá, er Illuga-Skotta var við
kennd).1)
Son Tlluga prests Helgasonar
var .Tón, kallaður „lærði“,
margfróður haldinn, bjó að
Skðgum á Þelamörk í Vaðla-
þingi. Ingibjörg Illugadóttir var
systir .Tóns, er átti Grím, prest 'á
Stað í Kinn um 46 vetur. Jón
lærði í Skógum átti Þuríði dótt-
1) f prestaæfum er talið, að síra 111-
ugi Helgason yrði prestur að Þóroddstað
í Kinn árið 1608 og væri þar til dauða-
dags, 1654. f málinu út af hýðingu
kvennanna er sagt, að síra Illugi hafi
fært það sér til varnar, að hann hefði
„hrokkið hrísi um þeiira liaus en ekki
daus“.