Dvöl - 21.01.1934, Page 16
14
D V
ö L
21. jan. 1934
ur GuÖmundar prests að Nesi í
Aðaldal, Bjarnasonar prests að
Grenjaðarstað, Gamalíelssonar
prests að Stað í Hrútafirði. Þrjár
eru taldar dætur Jóns og Þuríð-
ar: Katrín, Þuríður og Ólöf. —
Jón hét maður, Guðmundarson,
er bjó að Hellu á Árskógsströnd,
stólsjörð frá Hólum. Hann var
kallaður fjölkunnugur mjög, og
með hindurvilni fór liann. Er
hann og kallaður allillgjarn, að
því er Árbækur telja. Um það
var honum brugðið, að hafa
ginnt Jón Rögnvaldsson, hróður
Þorvaldar skálds á Sauðanesi á
Upsaströnd, sem fyrst var hér
hrenndur fyrir galdramál, að
sagt er.1)
1) Jón Rögnvaldsson var brenndur á
Melaeyrum í Svarfaðardal 1625. Jóni var
gefið það að sök, að hann hefði vakið upp
draug og sent hann manni á Urðum. Var
sagt, að hann hefði drepið þar liesta og
gert ýmsan annan skunda. Jón bar á móti
sökinni, en blöð fundust hjá honum með
rúnamyndum. Var þá ekki að sökum að
spyrja, enda tók sá, sem ásóttur var, guð
til vitnis um, að enginn hefði sent sér
drauginn annar en Jón Rögnvaldsson.
Engin líkindi fundust önnur gegn Jóni en
rúnablöðin. Sagt var, að Jón Guðmunds-
son á Hellu á Árskógsströnd hefði flækt
Jón Rögnvaldsson við fjölkyngi, í því
skyni að vinna mein Sigurði á Urðum,
sem hafði kennt honum galdur, en hleypt
svo fram af sér málinu þegar gamanið
fór að grána, og víst er um það, að þeir
voru óvinir upp frá þessu Þorvaldur á
Sauðanesi og Jón á Hellu. (Uhs. 2302,
4lo).
2. Þrakk Benedikts og Sigríðar
við Auðbjörgu.
Nú skal geta að nokkru þeirra
manna, er helzt koma við frá-
sagnir ttm viðureign þeirra Jón-
anna á Helltt og Skógum. Þá hélt
Möðruvallaklaustur Benedikt
Pálsson,1) sýslumanns Húnvetn-
inga, Guðbrandssonar biskups á
Hólum, Þorlákssonar. Benedikt
liafði verið hertekinn af Tyrkj-
um og verið fluttur annaðtveggja
i Alcier eða Túnis. Skutu þá göf-
ugir frændur hans fé saman hér
á landi, 800 dala, og keyplu hann
út. Kom hann við það út hingað
aftur. Hefir liann jafnan mikill
ágætismaður kallaður verið.
Hann fékk konu þeirrar, er Sig-
riður hét, og kölluð Jiin stórráða.
Hún var dóttir Magnúsar, auðugs
Itónda, Jónssonar að Sjávarborg
í Skagafirði. Hún erltölluð svark-
ur mikill og allólíkt farið þeim
manni hennar. Hefir sagt verið,
að hún spillti honnm því er hún
mátti. - - Auðbjörg hét kona ein
og var Gunnsteinsdóttir. Hafði
liún verið griðkona þeirra Bene-
dikts og Sigriðar. Var það þá eitt
sinn, að þær Sigriður og Attðhjörg
deiidu afarmjög, en ekki er þess
getið, Iivað á milli bar. Skamm-
yrti Auðbjörg þá mjög Sigríði, og
svo Benedikt mann hennar. Kom
illyrðantál þetta fyrir Þorlák
Hólabiskup Skúlason og sætti
hann mál þetta hinn 5. dag ágúst
1) U«nedikt fæddist 1668 o(j dó 1664.