Dvöl - 12.05.1935, Side 14

Dvöl - 12.05.1935, Side 14
14 D V Ö L 12. maí 1035 John Galsworthy Um aldamótin síðustu koru rithöfundurinn Joseph Conrad einu sinni í heimsókn til kunn- ingja síns. I fylgd með honum var ungur, lítt þekktur lögfræð- ingur, sem fékkst eitthvað við ritstörf. Hann hét John Gals- worthy. Conrad var í ljómandí skapi og lét dæluna ganga, en fé- lagi hans sat og hlustaði á og lagði fátt til málanna. Þegar þeir kvöddu húsráðanda, sagði Gals- worthy: „Ég er ekki eins mikill bjáni og ég lít út fyrir að vera“. Sú varð líka raunin á, að John Galsworthy sat ekki alltaf þegj- andi hjá. Það leið ekki á löngu áður en hann fór að leggja til málanna. Um þessar mundir var hann mjög hrifinn af Turgenev og varð fyrir miklum áhrifum frá honum. Hver bókin kom nú á fætur annari. Hann skrifaði leikrit og sögur, bæði stórar og smáar; einnig nokkuð af kvæð- um. Á árunum 1900—1920 komu út eftir hann níu langar sögur, ellefu styttri sögur, tólf leikrit og um hundrað smásögur og rit- gerðir, auk nokkurra kvæða. Sýn- ir þetta bezt, hver afkastamaður hann var. Galsworthy skrifar um landa sína, stéttirnar og einkenni þeirra, einstaklingana og eigin- leika þeirra. Hann hellir úr skál- um sinnar bitru hæðni yfir á- girnd og aurasýki, hégómaskap og fastheldni á ævagamla siði og ósiði. Hann býr til trúarjátningu fyrir lágaðalinn, fóikið, sem held- ur og vill, að heimurinn verði eins og hann er og um fram allt eins og hann v a r, fólkið, sem trúir á föður sinn og föðurföður sinn og föður-föðurföður sinn, íolkið, sem trúir á sjálft sig og son sinn og sonarson sinn og á landskikann, sem það býr á og það heldur, að muni aldrei að ei- lífu ganga úr eign ættarinnar. En Galsworthy skrifar um fleira en galla mannanna og smá- sálarhátt. Ilann getur skiiið sig írá þeim flokki manna, sem „lít- ur út eins og hann viti allt, en veit í rauninni ekkert“. — Og hann getur misst sjónar á maurapúkum, sem ekki kæra sig umi að „vinna sálu sína og bíða við það tjón á eigum sínum“. Hann dregur upp myndir af mönnunum og mannlífinu, eins og það er fegurst og glæsilegast, hann syngur lífinu lofsöng í gleði þess og sorgum, sælú þess og kvöl. Hann lýsir ástinni milli karls og konu, þessu óumbreyb- anlega, sígilda fyrirbrigði svo dásamlega, að fáir munu lengra hafa komizt, og penni hans mál- ar afdrif hins táldregna og von- svikna þannig, að ekkert nema hinn hrollkaldi veruleiki fær

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.