Melkorka - 01.05.1956, Side 3
MELKORKA
TÍMARIT KVENNA
Ritstjórn:
Nanna Ólafsdóttir, ReykjahliB 12, Reyhjavik, simi 3156 ■ Þóra Vigjúsdóttir, Þingholtsslrœti 22, Reykjavik, sitni 5199
Útgefandi: Mdl og menning
Æviminningabók íslenzkra kvenna
Menningar- og minningarsjóður kvenna he£ur látið
gera mikla og fagurlega útskorna æviminningabók, og
er fyrsta bindið komið út, 160 blaðsíður í stóru broti,
og eru þar birt æviágrip 61 konu og er þar fremst sjálfs-
ævisaga Bríetar Bjarnhéðinsdóttur.
Með útkomu æviminningabókarinnar hafa íslenzkar
konur eins og oft áður hafizt handa um merkilegt
menningarstarf og verður hún einskonar íslendingabók
hin nýja, því að þar munu geymast æviatriði og myndir
allra þeirra kvenna sem Menningar- og minningarsjóði
hafa borizt minningargjafir um, og verður því bókin
ómetanleg heimild.
Stofnandi sjóðs þessa var Briet Bjarnhéðins-
dóttir, og stofnfé sjóðsins var aflrent af börnum
hennar á 85 ára afmæli hennar, 27. sept. 1947.
Tilgangur sjóðsins er að vinna að menningar-
málum kvcnna á ýmsan liátt, eins og t. d. að
styrkja ungar menntakonur til frekara náms og
sérnáms í ýmsum greinum og að varðveita ævi-
minningar íslenzkra kvenna, en aðaltekjustofn
sjóðsins liefur verið sala merkja á afmælisdegi
Bríetar, og hefur verið úthlutað styrkjum úr
honum samtals um 200 þús. kr.
Stjórn sjóðsins er skipuð fimm konum, kosn-
um á Landsfundi kvenna fjórða hvert ár. í fyrstu
stjórn hans voru kosnar: Katrín Thoroddsen, for-
maður, Teresía Guðmundsdóttir, varaformaður,
Svafa Þórleifsdóttir, ritari, Þóra Vigfúsdóttir,
Matthildur Matthíasson. Núverandi stjórn skipa: Katrín
Thoroddsen, formaður, Svafa Þórleifsdóttir gjaldkeri og
framkvæmdastjóri sjóðsins, Ragnheiður Möller, ritari,
Lára Sigurbjörnsdóttir og Auðtir Auðuns meðstjórn-
endur.
Ágúst Sigurmundsson hefur skorið spjöldin og kjöl
æviminningabókarinnar, en Leifur Kaldal smíðað spenn-
ur. Prentsmiðjan Hólar sá um prentun og allan frá-
gang og ber þcssi sérstæða bók merki um vönduðustu
vinnubrögð.
MELKORKA