Melkorka - 01.05.1956, Blaðsíða 12
GALDRA-LOFTUR
Eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur
Fyrir skömmu lauk sýningum á leikritinu
Galdra-Loftur, eftir Jóhann Sigurjónsson,
í Iðnó. Leikurinn var mjög vel sóttur þótt
ekki sé liægt að telja hann til nýjunga á ís-
lenzku sviði. Sýningar hefðu eflaust haldið
áfram lengur, ef frú Erna Sigurleifsdóttir
iiefði ekki verið á förum til útlanda, en það
mun í ráði að Leikfélagið efni til leikfarar
í sumar til Færeyja og sýni þá einmitt
Galdra-Loft. Tel ég það mjög heppilega val-
ið að taka þetta leikrit, sem er svo vinsælt
hér enda þótt höfundur hafi gert betra verk.
Trúlega fellur það ekki síður vel í smekk
Færeyinga. Einnig er hrósvert að félagið
skuli verða til þess að heimsækja þessa ná-
granna okkar, sem við því miður leggjum
heldur litla rækt við.
Gunnar R. Hansen fer með leikstjóm og
fer hún frábærlega vel úr hendi, sem vænta
mátti um jafn ágætan mann í sinni grein.
Má telja það stóran feng fyrir Leikfélag
Reykjavíkur að jafn fær rnaður og Gunnar
Disa og Loftur.
Hclga Bachmann
og Gisli
Halldórsson.
Árni Tryggvason
og Kristin Waage
sem blindi
ölmusumaðurinn
og litla stúlkan.
Hansen skuli helga því starfskrafta sína, því
jafnframt og að vera víðfarinn og fjölvís í
leikhúsmálum öllum er hann jraulkunnug-
ur íslenzkri leiklistarþróun, þar sem má
segja að eiginlega hafi hann fylgst með
henni frá byrjun. Hansen var persónulega
vel kunnugur bæði Jóhanni Sigurjónssyni
og Guðmundi Kamban og hefur síðan haft
vakandi álruga á öllu því, sem gerzt hefur á
íslenzku leiksviði.
í uppsetningu gætir nokkurar nýlundu
og er mjög ánægjulegt að ekki sé farið eins
með lilutverkin eða í hvert skipti sami skiln-
ingur lagður í verkið, menn yrðu þá fljótt
leiðir á að sækja leikhús. Hansen tekst að
koma fram með ýmislegt nýtt, sem maður
lrafði ekki áður fundið í leikritinu. Það er
44
MELKORKA