Melkorka - 01.05.1956, Page 21

Melkorka - 01.05.1956, Page 21
stúdentinn sneyptur — Anjuta komst ekki til að hreinsa í dag. Hún hefur verið önnum kafin allan morguninn. Þegar málarinn og Anjuta voru farin lagðist Klotsjkov á legubekkinn og fór að þylja fræðin. Honum varð á að sofna og þegar hann vaknaði klukkustund síðar sóttu að honum hvimleiðar hugsanir. Hann fór að hugsa um það sem málarinn hafði sagt, að menntaður maður yrði að vera hreinlát- ur, og nú fannst honum þetta ástand sitt viðbjóðslegt, óþolandi. Honum fannst hann sjá inn í framtíðina þegar hann tæki á móti sjúklingum, drykki te í rúmgóðri stofu ásamt konu sinni, heiðarlegri konu. Og nú fannst honum þvottaskálin með síga- rettustubbunum andstyggileg. Nú fannst honum Anjuta 1 íka ljót, sóðaleg, aum. Og hann ákvað að skilja við hana — strax og hvað sem það kostaði. Þegar hún kom aftur frá málaranum og ætlaði úr kápunni, reis hann upp og sagði alvörugefinn: Hlustaðu á mig góða mín . . . Seztu hérna. Við verðum að skilja. í stuttu máli, ég kæri mig ekki um að búa með þér lengur. Anjuta var þreytt og af sér gengin, þegar hún kom frá málaranum. Hún hafði setið svo lengi fyrir, að andlitið virtist magurra en ella, hakan meir framstandandi. Hún svaraði ekki læknastúdentinum, varirnar skulfu bara. Þú hlýtur þó að sjá að fyrr eða síðar verð- um við að skilja, sagði læknastúdentinn. Þú ert svo góð stúlka, og óheimsk, þú skilur það . . . Anjuta hneppti að sér kápunni, lagði saumana inn í pappír, tíndi saman þráð og nálar. Pokann með fjórum sykurmolum tók hún úr glugganum og lagði á borðið við hliðina á bókunum. Þér megið eiga — sykurinn — sagði hún lágróma og sneri sér undan svo hann sæi ekki tárin. Hvers vegna ertu að gráta? spurði Klotsj- kov. Hann gekk til hennar og sagði hnugginn: Þú ert indæl . . . Þú veizt það vel, að við verðum að skilja. Við getum ekki verið saman að eilífu. Hún var með þessar litlu eigar sínar í höndunum og sneri sér að honum til að kveðja, og nú vorkenndi hann henni. Það gerir svo sem ekkert til þó að hún verði hér eina viku enn, hugsaði hann. Já, hún getur verið hér nokkra daga til viðbót- ar og svo segi ég lienni eftir viku að fara. Og hann sagði fruntalega — dálítið gram- ur sjálfum sér að hafa ekki meira viljaþrek en þetta. Hvers vegna stendur þú þarna. Ef þú ætlar að fara þá farðu og ætlir þú ekki að fara þá vertu kyrr og farðu úr kápunni! Vertu kyrr! Anjuta fór þegjandi úr kápunni, svo þerraði hún tárin, einnig þegjandi, and- varpaði og gekk hljóðlaust á sinn gamla stað, í krókinn við gluggann. Stúdentinn tók bókina og fór að ganga fram og aftur um herbergið. Hægra lunga samanstendur af þrem aðal- hólfunr . . . þuldi hann. Efsta aðalhólfið nær á framvegg brjóstliolsins niður á 4. - 5. rif- bein . .. En frannni á ganginum hrópaði einhver fullum hálsi: Grigorij, komdu með samóvarinn! (1886) N. Ó. þýddi Steinselja Stcinselja cr mjög fjörefnarik og liana má þurrka eins og ýmislegan annan gróður. Það eru lika margar hús- mæður scm gera það. Kaupa þær steinseljuna í knipp- um og hengja hana upp á þurrum og hlýjum stað, — t. d. í miðstöðvarklefanum — og geyma hana til síðari nota. Sumar hafa líka saxað hana niður og hnoðað hana eða hrært.með smjöri, sem geymt er í glerkrukku. En þá er aðeins hægt að nota hana í bræddu smjöri. Bezt er þó að sá steinseljunni i garðinn sinn og þarf ckki undir hana nema lítinn blett — svo sem feralin (eða 75 cm.), fæst þá nægileg steinselja fyrir heimilið. Sagt cr að ein teskeið af saxaðri steinselju daglega sé nægilcgt fjörefni fyrir hvern mann. MELKORKA 53

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.