Melkorka - 01.11.1957, Page 10
Frá Ceyloti
friðarráðsins í Asíu. Þessi tilhögun fékk
djúpan hljómgrunn hjá þjóðinni sem með
nýfengnu frelsi er að byrja að byggja upp
]}að sem aldalöng nýlendukúgun og inn-
rásarherir hafa brotið niður og eyðilagt;
hlaut fundurinn stuðning hárra sem lágra
og miklar vonir tengdar störfum lians.
Fundurinn var m jög undir asíatískum á-
hrifum, bæði vegna þess að þaðan voru
flestir fulltrúanna og hinu ekki síður, að þar
er flest ógert, vandamálin óteljandi og krelj-
ast skjótrar úrlausnar. Við þingsetninguna
voru lesin ávörp frá áhrifamönnum víða um
heim. Forseti Heimsfriðarráðsins, prófessor
Frederich Joliot-Curie, sendi álitsgerð og
harmaði fjarveru sína, sem stafaði al' sjúk-
leika. Albert Sclnveitzer sendi fundinum
kveðjur og Iivatningarorð, undirstrikaði
enn einu sinni hina gífurlegu hættu, senr
öllu mannkyninu er búin af kjarnorku- og
vetnisvopnum og tilraunum með þau, sagð-
ist staddur hjá okkur í anda og lýsti hryggð
sinni yfir að hafa ekki getað komið. Martin
Niemöller sendi kveðju og bað fundinum
blessunar, Hewlett Johnson sömuleiðis.
Nehru forsætisráðherra Indlands, Norod-
one Sihannle forsætisráðherra Cambodia,
Bandaranaike íórsætisráðherra Ceylons
sendi kveðjur og árnaðaróskir; svona mætti
lengi telja, sent yrði alltof langt mál. Fund-
urinn var settur af dómsmálaráðherra Ceyl-
on, de Silva; í fjarveru forseta heimsfriðar-
ráðsins, hélt varaforseti Emanuel d’Astier
(franskur) fyrstu ræðuna, skýrði störf ráðs-
ins milli funda, heimsástandið og það sem
framundan væri og fyrir lægi.
Ástandið í Austurlöndum nær var mjög á
dagskrá og urðu snarpar deilur milli full-
trúa ísraels og Arabaríkjanna. Komu fram
nær ósættanleg sjónarmið, sem jró fyrir til-
verknað indversks fulltrúa, Pandid Sund-
ela, tókst að jafna, sagði hann að báðir aðilj-
ar yrðu að mætast á miðri leið með J)að eitt
að leiðarljósi að leysa deilumál sín friðsam-
lega á jafnréttisgrundvelli. Þessir aðiljar
stóðu einhuga að baki þeim ályktunum og
ávörpum, sem fundurinn sendi frá sér og
töldu rétt að þar kæmi fram, að „ögrunin
við Arabaríkin væri ekki liðin hjá, þó að
árásin á Egyptaland hefði misheppnazt,
íhlutun utanaðkomandi aðilja um innan-
ríkismál í Austurlöndum nær héldi áfram
og ástandið væri jafnalvarlegt, jressvegna
yrðu þjóðir heimsins að vera vel á verði.
Barátta nýlendnanna fyrir frelsi og full-
veldi var rædd, enda ekki að ólíkindum.
Var langt mál um það í ályktun fundarins.
„Varanlegur friður getur ekki átt sér stað á
meðan frelsishreyfingum fjölda |)jóða er
haldið í skefjum með vopnavaldi. Þess
vegna er barátta jrjóðanna fyrir efnalegu
og pólitísku sjálfstæði, staðfestur réttur sam-
kvæmt stofnskrá Sameinuðu jrjóðanna, bar-
átta fyrir friði í heiminum." Við að hlusta á
ræður fulltrúanna frá nýlendunum, skildist
manni hin gífurlegu vandamál sem þar er
74
MEI.KORKA