Melkorka - 01.11.1957, Side 20
Brdðum koma blessuð jólin
börnin fara að hlakka til.
A llir fá þá eitthvað fallegt,
í það minnsla kerti og sþil.
Hvað það verður veit nú enginn
vandi er um slikt að sþá,
en eitt er vist, að alltaf verður
ákaflega gaman þá.
Æðst allra eika
eitt tréð ber skjól
þar vildi ég leika
þrilielg öll jól
<_________________________________________
stöðva tilraunir með atómsprengjur þegar í
stað. A því er enginn vafi, að verði þessum
sprengingum lialdiðáfram, eykst geislamögn-
unin enn örar. Reiknað hefur verið út, að
verði tilraunum lialdið áfram í sama mæli
og nú, verður magn strontíums í vatni í
kringum 1970 orðið 1/125 af hámarki þess
sem kynfrumur manna þola og kemst upp í
10—40% af geislun af náttúrlegum orsök-
um, þar með talin geislun frá radium í
beinum manna.
Segja mætti, að magn þetta sé svo smátt,
að ekki sé umtals vert. En ef ekki næst al-
þjóðlegt samkomulag strax, ef hvert landið
á fætur öðru bætist við í kapphlaupið um
atómvopn, þá er enginn vafi, að sprenging-
um fer fjölgandi, og við nálgumst hið
hættulega hámark miklu örar.
Og ennfremur. Þessar tölur, sem nefndar
hafa verið, varða aðeins hættuna af stron-
tíum í beinum þ. e. hinar ýmsu tegundir
krabbameins, sem geislunin getur valdið,
sér í lagi Iivítblæði og blóðkrabba. Við meg-
um ekki gleyma, að þessi hætta er tiltölu-
lega miklu meiri fyrir börn, þar sem þau
neyta tiitölulega meiri mjólkur og fá Jrví
meira af geislavirku strontíum í bein sín en
fullorðnir. Við megum lieldur ekki gleyma
að Jressir mjög svo lauslegu útreikningar eru
meðaltölur og hættan getur verið miklum
mun meiri fyrir suma einstaklinga og sum
landsvæði, þar sem eðli jarðvegs er þannig
liáttað, að liann tekur til sín óvenjumikið af
hinu geislavirka efni.
Eitt sérstakt tilfelli er ekki svo mikilvægt
fyrir allan heiminn. En ef um Jritt eigið
barn cr að ræða, þá er Jrað vissulega mikil-
vægt.
Önnur liætta, sem mjög erfitt er að meta,
er hættan fyrir J^á óbornu. Við vitum, að
geislun getur valdið breytingum á kyn-
frumum. Slíkar breytingar á þróun manns-
ins geta eins og nú er komið aðeins orðið
skaðlegar, þ. e. breytingarnar valda ófrjó-
semi, börn fæðast andvana, vansköpuð eða
andlega vanþroska. Það er nærri ómögulegt
að reikna slík áhrif nákvæmlega fyrirfram.
En Jrau eru vissulega til staðar og munu
aukast, ef tilraunasprengingum er haldið á-
fram.
Að vísu mætti segja, að slík hætta geti
ekki verið mikil, fyrst ekki er hægt að mæla
hana. En reynsla síðustu ára sýnir, að af-
84
MEI.KORKA