Melkorka - 01.03.1960, Blaðsíða 16
HALLDÓRA B. BJÖRNSSON
LÁTTU ÞER
VAXA TRÉ
Vex liha tré við gluggann þinn?
Nei
Og sérðu þá ehki
þegar röhhvað er orðið
hpma utanúr geimnum
lítinn mógráan fugl
setjast á blaðlausu grcinina
skorða sig þar
stinga höfði undir vamg
og sofna?
Nei
Og scrðu þá ekki heldur
þcgar morgnar
litla mógráa fuglinn
lyfta höfði undan væng
núa stirur úr kringlóttum augum
teygja fyrst annan fótinn
og annan vœnginn
teygja siðan hinn fótinn
og hinn vœnginn
ýfa fiðrið og hrista af sér morgunhroll
hoþpa uþpá nœstu grein
hrista sig þar enn
og tína af sér óværð?
Nei
Og hefurðu þá aldrei
séð hann sþyrna fótum
ramba á skjálfandi kvistinum
þeytast af stað
og hverfa
úti hálfnaðan morguninn?
Nei aldrei
Þetta gcctirðu séð
ef tréð vceri vaxið
TVÖ SMÁLJÓÐ
i
Litið barn
þú sást konuna ganga
einmana á jörðunni
og baðst guð að blessa hana
hann sendi þig til hennar
og þú verður að gjalda
með lieilli wvi
II
Ef þú villt leita viskunnar
skaltu hvorki hlaupa né sþyrja
heldur biða og hlusta í kyrrð
það er eins og að liggja á botni hyljarins
þvi lygnari og dýþri sem hylurinn cr
því fleira berst þangað
en það er ekki allt til gleði
\
Karlmennirnir vilja, að því er þeir sjálfir
segja nnna okkur alls þess frelsis og allra
þeirra réttinda, sem við óskum eftir og get-
um notið. Segja má að konurnar sjálfar sofi
oft á verðinum, en út í það er of langt mál
að fara. Greinilegt er að mest skortir á
launajafnréttið, og mundu þó fáir nú orðið
vilja reyna að verja það sjónarmið að kona
eigi að fá sama verk ver launað en karl-
maðurinn. Ýtarleg löggjöf um þetta efni er
sjálfsögð og mundi verða til mikilla bóta,
en mest veltur á framkvæmdinni og hygg ég
að þar verði að koma til vakandi eftirlit
kvennanna sjálfra í hinurn ýmsu atvinnu-
greinum og stéttafélögin að taka upp mál-
stað kvennanna. Kvenréttindafélagið er svo
hin eðlilega miðstöð til livatningar og leið-
beininga. María Þorsteinsdóttir.
16
MELKORKA