Skutull

Årgang

Skutull - 24.12.1951, Side 10

Skutull - 24.12.1951, Side 10
10 S K U T U L L „í kolgrænum sjó“ Allir Isfirðingar þekkja Gísla Gíslason á Héðinshöfða. Einhvern veginn hefur það far- ið svo, að í hvert skipti, sem ég hef séð hann eiga leið hjá, hefur athygli mitt festst við hann. Oft- ast er hann vinnuklæddur og á- kafinn gustar af honum. Þegar hann hins vegar virðist ekkert hafa viðbundið, lötrar hann stund- um áfram, íhugull í dreyminni ró eins og umhverfi hans sé honum horfið og hann dveljist í einhverri órafjarlægð. Verði manni gengið fram hjá bústað hans, þar sem hann hefur byggt sér sitt ríki, sézt hann oftast sýsla við kindur sínar eða túnblett. Kveðjum og á- varpi þeirra, sem um veginn fara tekur hann með óvenjulegri kurt- eisi. Málrómur hans er djúpur og eilítið hrjúfur. Hann horfir á við- mælanda góðlegum augum undan háum, loðnum brúnunum. En í stórskornu andliti þessa hvíthærða, áttræða manns má skyggnast inn i veðraheim mikilla skapbrigða. Þegar ég eitt sinn átti leið með honum á götu, innti ég hann eftir átthögum hans og uppruna. Þá fékk ég vitneskju um það, að hann hafði eitt sinn verið útgerðarmað- ur og sjósóknari austur á fjörðum, en ein óveðurrsnótt hafði tekið allt frá honum. Þá lagði hann upp í för sína í leit að því, sem hann hafði tapað, en fann það ekki aft- ur. Hann hafnaði í fjarlægasta landsfjórðungnum og leitaði enn fangbragða við sinn hættulega æskuvin, sjóinn, sem nú brást hon- um í allri rausn nema á hamfarir og stórsjóa. Gísli sagði að lokum nauðugur skilið við hann, en gleymdi honum aldrei. Nú hefur saga Gísla Gíslasonar verið skráð af Óskari Aðalsteini, rithöfundi, og gefin út hér á Isa- firði. Þetta er lítil bók, aðeins sex- tíu og fjórar blaðsíður í fremur litlu broti. Það er hætt við, að hún týriist einhvers staðar í bóka- flaumi jólanna, og þeir, sem kaupa bækur eftir vigt sjá hana sjálfsagt ekki. Isfirðingar veita henni þó ef- laust eftirtekt og munu hafa nokkra forvitni á að sjá, hvað þessi kunningi þeirra hefur að segja. Eflaust munu margir leggja bókina frá sér að lestri loknum með þeim ummælum, að þetta sé ekki ævisága heldur einungis nokkrar sjóferða og hrakningasög- ur. Og víst hafa þeir nokkuð til síns máls. Gísli hefur ekkert að segja af samtíð sinni eða samferða mönnum, nema þeim, sem verið hafa með honum í hrakviðrum á sjó. Hann kvartar ekki undan vonzku mannanna — hefur yfir- leitt ekkert um þá að segja. Ekki hafa heldur stórfeldar breytingar um ævi hans í atvinnu og lífshátt- um orðið honum til frásagnar. O, nei, nei. Líf hans hefur verið feiknleg átök við brotsjóa. Á gamals aldri, þegar hann horfir yfir sigldan sjó, hverfur honum allt annað en happsæl viðureign við stórsjóana. Þar hefur líf hans náð fyllsta gildi og lífsnautn hans orðið mest. Allt annað verða smá- munir. Þá mun ýmsum þykja sögur hans kynjafullar og ótrúlegar. En raunveruleikinn er stundum skáld- skapnum ýkjukenndari. Við aftan- skin ævi sinnar les gamall maður lífsævintýri sitt. Allt, sem hann hefur misst á einni óveðursnóttu, ávinnur hann sér á ný í sigrum riddai’asagna sinna. Hann tapaði, en sigraði samt. Sú fullvissa sætt- ir hann við lífið. óskar Aðalsteinn hefur skrásett sögur Gísla og auðsjáanlega notið frásagna hans. Hann gefur lausan kúpur. Almennt voru notaðir tré- diskar. Eitthvað lítið var þó til af leirdiskum, sem helzt voru notað ir fyrir gesti. Þegar klukkan var sex voru allir seztir hver á sitt rúm. Fóstri minn tók fram lestrar- bækurnar en það voru í þetta sinn þrjár sálmabækur, Péturshug- vekja og barnakver. Fóstri minn rétti nú drengjunum eina sálma- bók og fóstru aðra, en sjálfur söng hann á þá þriðju. Ég sat á hnjám hans og horfði á bókina hjá hon- um, þegar fóstri minn byrjaði sálminn. ,,Nú eru byrjuð blessuð jól“. Við fundum að jólin voru komin til okkar. Að Jesúbarnið var þarna mitt á meðal okkar, þó að við sæ- um það ekki. Þeim friði og gleði sem þá gagntók mína gljúpu barns sál get ég ekki lýst. — Fóstri las svo lesturinn. Á eftir var sunginn sálmurinn: „í Betlehem er barn oss fætt“. Þegar búið var að syngja seinni sálminn var þögul bæn litla stund og djúp þögn. Síð- an signdi hver sig, stóð upp og þakkaði fóstra fyrir lesturinn með kossi, en hann sagði við hvern einn: „Guð blessi þig“. Svo bauð hver öðrum gleðileg jóL Nokkru eftir lesturinn var drukkið kaffi og borðaðar lummur. Síðan var kveikt á jólatrénu, og mér fannst gamla hrörlega baðstofan verða að höll, því nú bar hvergi skugga á. Svo sungum við jólasálma. Ég var mjög hamingjusöm með nýja brúðu á handleggnum, sem fóstursystir mín hafði að öllu leyti búið til. Hún hafði klippt neðan af fallegu fléttunum sínum, sem náðu niður fyrir mjaðmir, og sett hárið á brúðuna. Ég kunni nú víst ekki þá að meta þessa fórn að verðleik- um. En ég man að ég vafði léttu handleggjunum mínum um háls- inn á systur minni og kyssti hana heitt og innilega. — Ekki mátti lifa lengur á jólatrénu í þetta skipti því að helminginn af kertunum varð að geyma til nýársins, svo að eft ir nokkra stund var slökkt á þeim og jólatréð fært til hliðar. . . Þannig var jólaundirbúningur- inn og jólahaldið á heimili fóstur- foreldra minna, sagt frá í stór- um dráttum og svipað hygg ég að það hafi verið á heimilunum í kring. Og svo að síðustu: Ætti ég eina ósk til handa ís- lenzkum börnum á þessum jólum sem nú fara í hönd, mundi ég hik- laust óska þeim að þau ættu jafn hreína og fölskvalausa ánægju og ég átti þessi umræddu jól, árið 1908. Bjargey Pétursdóttir, frá Hælavík.

x

Skutull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.