Skutull - 24.12.1951, Page 11
S K U T U L L
11
V etr ar oly mpiuleikarnir
ryrfrrv
VI. vetrarolympiuleikarnir verða
háðir í Osló dagana 14,—25 febr.
1952.
Að öllu forfallalausu verða þetta
fyrstu Olympíuleikarnir sem fs-
firðingar taka þátt í. Þykir mér
því hlýða að minnast á þá hér og
undirbúning þeirra lítillega.
Olympíunefnd fslands sér um
allan undirbúning og ákveður
keppendur fyrir fslands hönd. En
Skíðasamband fslands fjallar og
um undirbúning og val keppenda,
en þeirra samþykktir eru aðeins
ábendingar til Olymíunefndar.
Að líkindum munu fjórir eða
fimm ísfirðingar koma til greina
sem keppendur á Olymíuleikunum
fyrir fsland, en það verður stærsti
keppendahópurinn frá einu byggð-
arlagi, en keppendur verða 10
alls. Þessi niðurstaða Olympíu-
nefndar kemur engum á óvart, því
að ísfirðingar hafa sýnt það á
undanförnum skíðalandsmótum að
þeir eru vel að þessum heiðri
komnir. En einhver sá mesti
heiður, sem íþróttamanni get-
ur hlotnast, er að vera valinn til
Olympíufarar.
Olympíunefnd er búinn að til-
kynna, að sex keppendur verði
sendir í göngu, það er í 50 km.
göngu, 18 km. göngu og 4 x 10 km.
Ebenezer Þórarinsson.
tauminn og lætur gamminn geisa.
Einstaka sinnum skjótast inn setn
ingar, sem rjúfa heild stílsins, en
annars er frásögnin lifandi og
skemmtileg.
Með ritun þessarar frásagna
mun höfundurinn ekki hafa ætlað
sér að skrifa bók, sem hefði mikið
bókmenntagildi. En hún bregður
upp mynd af þulnum, gerða með
fáum hrjúfum dráttum, svo að
þeir, sem til þekkja, kenna þar
Gísla á Héðinshöfða.
Þórleifur Bjarnason.
boðgöngu . En Olympíunefnd er
ekki búin að tilkynna það opin-
berlega hverjir verði fyrir valinu.
Það mun þó vera opinbert leynd-
armál að til göngukeppninar verða
valdir þrír ísfirðingar og þrír
Þingeyingar. Eru það Isfirð-
ingarnir:
Ebenezer Þórarinsson,
Gunnar Pétursson,
Oddur Pétursson.
Og Þingeyingarnir:
Jón Kristjánsson, íslands-
meistari í 18 km. göngu.
ívar Stefánsson, íslands-
meistari í 30 km. göngu.
Matthías Kristjánsson.
Þessir sex menn hafa nú í haust
æft hér á ísafirði, undir stjórn
J. Tenmann, skíðagöngukennara
frá Noregi.
Hafa æfingar verið skipulagðar,
og nemendur lagt sig mjög fram
við námið. Telja þeir sig hafa haft
mikið gagn af kennslunni. Þjálf-
arinn hefur látið í ljós, að nem-
endurnir hafi verið samvizkusamir
við þjálfunina og álítur hann að
göngumennirnir verði vel undir-
leikana búnir.
Það er allt miklu óvissara um
svig- og brunkeppnina, en heyrst
hefur að aðeins þrír keppendur
verði sendir í þessar greinar.
Þessir skíðamenn hafa verið
nefndir, sem hugsanlegir kepp-
endur í svigi og bruni.
Haukur ó. Sigurðsson, ísaf.
Jón Karl Sigurðsson, ísaf.
Magnús Brynjólfsson, Ak.
Ásgeir Eyjólfsson, Rvík
Stefán Kristjánsson, Rvík.
Þórir Jónsson, Rvík.
Enginn ágreiningur er um, að
Haukur Sigurðsson, Islandsmeist-
arinn í svigi og í samanlögðu svigi
og bruni (Alpagreinunum), verði
valinn til keppninnar.
Öðru máli gegnir um Jón Karl
Sigurðsson. Hann hefur dvalið
í Svíþjóð síðan í vor hjá sænska
Olympíuþjálfaranum Hans Hans-
son og æft undir hans stjórn. Jón
dvelur í sænsku borginni Áre, en
þar er nú búið að byggja stærstu
svigbraut í heimi enda á heims-
meistarakeppnin í svigi og bruni
að fara fram í þessari braut árið
1954. Aðstaða Jóns hefur því ver-
ið alveg sérstæð að geta æft í þess-
ari erfiðu braut og notið tilsagnar
þjálfara sænsku Olympíufaranna.
Bæði Skíðaráð Isafjarðar og
Knattspyrnufélagið Hörður hafa
bent Skíðasamb. íslands og Ol-
ympíunefnd á Jón Karl sem kepp-
anda vegna hinna ágætu skilyrða
sem hann hefir haft til æfinga frá
síðasta landsmóti, en þar bar hann
af sínum keppendum svo glæsilega
sem öllum er í fersku minni.
1 bréfi til Ksf. Harðar hefir
Hansson látið þess getið, að Jón
Karl hafi stundað æfingakerfi sitt
af miklu kappi og sýnt alveg sér-
stakan áhuga og samvizkusemi við
þjálfunina með það fyrir aug-
um að keppa á Olympíuleikunum.
Telur hann Jón Karl fyllilega fram
bærilegan sem keppanda fyrir Is-
lands hönd. Þetta segist Hansson
geta sagt, þar sem hann þekkir
til íslenzkra svigmanna. Hefir
Olympíunefnd verið sent þetta bréf
Hansson. — Þess skal að lokum
getið að það er réði því að Jón
Karl einbeitti sér þannig að þjálf-
un sinni undir Olympíuleikana að
vetri komanda voru áeggjunarorð
og loforð um að hann yrði sendur
á leikana.
Því verður ekki trúað að Ol-
ympíunefnd gangi fram hjá Jóni
Karl, þegar hún velur íslenzku
þátttakendurna í svigi og bruni,
því að Jón Karl er efalaust eini
íslenzki svigmaðurinn sem er vel
undir leikana búinn. — Isfirðing-
ar munu fylgjast með því hversu
fram vindur í þessu máli af mikl-
um áhuga. 1 sænsku blaði birtist
nýlega mynd af Jóni Karl og þess
getiö að hann hafi þá nýlega keppt
í skíðamóti og staðið sig með þeim
ágætum að verða fyrstur í stór-
svigi og annar í svigi og fyrstur
1952
í samanlögðu. Jón Karl mun nú
fara fyrir alvöru að keppa á mót-
um og vonandi er þetta byrjunin
á afrekum hans í vetur á vett-
vangi skíðaíþróttarinnar.
Olympíunefnd hefur fengið
gagnrýni í sambandi við störf sín,
og sérstaklega í sambandi við
Alpagreinarnar. I fyrsta lagi hvað
fáir keppendur eru sendir í þess-
ar greinar. I öðru lagi að skipu-
legar æfingar fyrir svig- og brun-
menn hafa engar verið og í þriðja
lagi hvað seint ákveðið er hverjir
verði fyrir valinu. En þessi drátt-
ur á útnefningum Olympíunefnd-
ar á svig- og brunmönnum sýnir,
að ekki er einhugur um hverjir
eigi að fara. Mun Skíðasambandið
vera klofið um sínar ábendingar,
enda ábyggilega mjög erfitt og
vandasamt verk að velja aðeins
þrjá keppendur af þeim sex fyrr-
töldu svig og brunmönnum. En að-
eins þrír menn til að keppa á leik-
unum er of lítið. Lágmarkið er sex
keppendur í þessar greinar, og
ættu þá allir fyrrtaldir svigmenn
að fara, og mundi þá Olmpíunefnd
losna úr miklum vanda.
I stökki mun einn þátttakandi
verða sendur, Siglfirðingurinn Ári
Guðmundsson, en hann er nú við
nám í Svíþjóð. Ætlar Olympíu-
Þingeyingarnir Ivar Stefánsson og
Jón og Matthías Kristjánssynir.
nefnd og Skíðasambandið að ganga
fram hjá íslandsmeistaranum í
stökki, Jónasi Ásgeirssyni frá
Siglufirði. Þessi ráðstöfun er
ákaflega ósmekkleg.
Ég vil geta þess að lokum, að
Skíðaráð ísafjarðar hefur sótt um
styrk til bæjarstjórnarinnar, vegna
ísfirzku keppandanna og vonandi
sjá forráðamenn bæjarins mögu-
leika til þess að verða við þeirri
beiðni Skíðaráðsins, þótt vitað sé
að í mörg horn sé að líta.
Gunnlaugur Ó. Guðmundsson.