Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1998, Blaðsíða 2
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ 1 REYKJAVÍK OG NÁGRENNI
, « FRÉTTABRÉF
ÚTGEFANDI:
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
S. JÓNA HILMARSDÓTTIR
Ágætu Siglfirðingar, nær og fjær!
Aðalfundur félagsins verður á Litlu-brekku (Lækjar-
brekku) 28. október nk. Allir Siglfirðingar eru vel-
komnir. Eru þetta venjulega fjörugir og skemmtilegir
fundir þar sem Siglfirðingar koma saman, rabba og
skiptast á skoðunum. Ekki spillir að félagið bíður upp
á kaffi og kökur.
Heyrt hef ég að fólk þori ekki á fundi félagsins
vegna hræðslu um að vera stillt upp í nefndir. En þarf
ekki einmitt að vera á staðnum til að segja nei? En af
hverju ekki að starfa í félaginu? Þetta er skemmtilegur
félagsskapur. Láttu sjá þig, lesandi góður, segðu þína
skoðun og hlustaðu á aðrar!
Jólaballið verður að venju haldið í lok desember. Jóla-
ballsnefndin hefur staðið sig mjög vel og er alltaf að
fjölga ungum Siglfirðingum á þessa hátíð. Allt um
jólaballið í blaðinu á bls. 19.
Myndin á forsíðunni var tekin á Kaupfélagsplaninu
19. júlí 1959.
Gleðilega árshátíð!
S. Jóna Hilmarsdóttir
Þá er komið að 23. Fréttabréfi Siglfirðingafélagsins í
Reykjavík og nágrenni. Tilgangur Fréttabréfsins nú, er
eins og áður að færa Siglfirðingum fréttir af félaginu,
hvað er að gerast og svo framvegis. Einnig er reynt að
hafa með ýmsan fróðleik, rifja upp sögur og birta
gamlar myndir. Auðvitað eru allar ábendingar,
varðandi efni í blaðið, vel þegnar.
r Xv-i
jjS. Jóna Hilmarsdóttir
Smárahlið 22, 603 Akureyri
Sími: 460 6117 & 462 6336
Netfang: s.jona@mmedia.is
Þann 17. maí í vor var haldinn hátíðlegur 30. kaffi-
dagur félagsins, var þar fjölmenni mikið samankomið
og allir skemmtu sér hið besta.
Afmæli Siglufjarðar var minnst nánast í allt sumar á
Siglufirði. Aðalafmælishelgin var 9.-12 júlí, var þar
margt um manninn og komu fram fjöldi skemmti-
krafta og margir stigu í pontu. Skartaði bærinn sínu
fegursta veðri þennan dag.
Það helsta sem er á döfinni hjá félaginu á næstunni er
auðvitað árshátíðin. En hún verður haldin á Hótel
Sögu, Súlnasal, 10. október nk. Skiptir nú miklu máli,
Siglfirðingar góðir, að við mætum sem allraflest, hress
og kát að vanda. Það er dýrt að halda svona hátíð og
þarfnast hún mikils undirbúnings. Óli Bald. og Helga
Ott. hafa haft veg og vanda að árshátíðinni í ár eins og
í fyrra. Tókst þeim frábærlega vel þá og gera örugglega
eins í ár. Þau hafa fengið Miðaldamenn til að syngja og
spila, Fílapennslakórinn frá Siglufirði verður á svæð-
inu, gömul Gaggó-hljómsveit treður upp og sitthvað
fleira verður á döfinni fyrir utan góðan mat á Sögu. Til
að festa svona viðamikla árshátíð í sessi skiptir miklu
að sem flestir mæti. Hvet ég hér með alla Siglfirðinga
og þeirra fólk til að sýna þessu áhuga og t.d. hóa í
bekkjarfélaga og saumaklúbba.
Þau stjórna
árshátíðinni!
Óli Bald. og Helga Ott. hafa veg og vanda
af árshátíðinni í ár eins og ífyrra. Þakka
má þeim óeigingjarna vinnu við
framkvœmd hennar.
2