Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1998, Blaðsíða 17

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1998, Blaðsíða 17
Kristinn Guð- mundsson var sýn- ingarstjóri þetta kvöld og hjá honum í sýningarklefanum var Ragnar, elsti sonur Thorarensen. Filman sem verið var að sýna slitnaði fyrir ofan ramma og svo illa vildi til að filmuræman rúllaði inn í kolbogahúsið (ljósgafann). Þá voru filmurnar úr efni sem kallað var nitrit, sama efni og var notað í riffilskot í stríðinu. Ekki var að sökum að spyrja, það kviknaði í og fyrr en varði varð úr eitt eldhaf. Kristinn byrjaði á því að koma Ragnari út, fór síðan og slökkti á vélinni og ætlaði að freista þess að koma logandi film- unni út. Hann greip um spóluna, bar hana út að glugga en um leið og aukið súrefni umlukti spóluna varð allt alelda. Kristinn brenndist illa bæði á höndum og andliti. Það er að segja af áhorfendum að það gleymd- ist að kveikja ljósin í salnum en áhorfendur komust ekki hjá því að sjá hvað var að gerast, fyrst þegar slitnaði og síðan af eldbjarmanum og allir þutu hver um annan til dyra. Engin alvarleg meiðsl urðu á fólki ef undan er skilinn sýningar- stjórinn. En síðar var sagt frá því að tréklossar sem færeyin- garnir áttu hefðu verið á floti um allan salinn, en þeir höfðu flestir skilið þá við sig í látunum við að komast út og sagnir herma að það hafi verið spaugilegt að fylgjast með daginn eftir, er þeir reyndu að þekkja og endurheimta skótau sitt og sumir kröfðu „bíóið“ um nýja skó eða bætur fyrir þá gömlu, sem þeir fengu. Það urðu ekki mjög miklar skemmdir á hús- inu og hófust sýningar aftur nokkrum mán- uðum síðar. Sýn- ingarstjórinn stjórnaði uppsetningunni á tækjabúnaði aft- ur en gat lítið annað gert þar sem hann var með reifaðar hendur. Hann hóf þó sýningar að nýju þegar húsið var tekið í notkun aftur. Athyglisvert er um þennan atburð að það er til filmubútur sem eftir var í myndrammanum (ein heil mynd), rammi lítilsháttar sviðinn og á svörtum fleti standa þessi orð: „Dod over Nero, Dod over Brændstifteren“. En einmitt á þessari stundu í bíómyndinni sjálfri stóð yfir bruni Rómarborgar á dögum Neros eins og sagan segir og á tjaldinu í salnum var einmitt eldsvoði og textinn er tilkominn þar sem fólkið „hrópaði“ formælingar yfir Nero. En þetta var ein af „þöglu“ myndunum sem verið var að sýna og talmyndirnar ekki komnar. Heimildir frá Steingrími Kristinssyni, úr blöðum, gefnum út á Siglufirði á þessutn tíma. Einnig ýmsar munnlegar beimildir. Þessar myndir eru úr sal Nýja bíós hér á árum áður. Onnurfrá leiksýningu og hinfrá tónleikum. Sendandi og Ijósmyndari: Steingrímur Kristinsson. Dad over Nero! Dod over Brondstifteren! 17

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.