Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1998, Blaðsíða 4
Fyrst í bíó 2ja ára
Steingrímur Kristinsson (Kristins í bíó) er flestum
Siglfirðingum kunnur. Hann var ekki nema 2ja ára
þegar hann fór fyrst í bíó. Hér á eftir ætlar hann að
segja okkur sitthvað frá bíódögum sínum
Steingrímur, þú befur lengi
verið kenndur við bíó Hvað
varstu gamall þegar þú fórst
fyrst í bíó ?
„Móðir mín sagði mér að ég
hefði verið 2ja ára þegar ég sá
mína fyrstu bíómynd. Eg man
sjálfur ekki neitt frá þeirri mynd
en móðir mín sagði mér að það
hefði verið teiknimynd. En síðan
hefi ég nánast séð allar myndir
sem tök voru á án tillits til þess
hvort þær voru bannaðar börn-
um eða ekki, ég var bara uppi í
sýningarklefa hjá pabba þegar
myndir voru bannaðar.
Móðir mín kom mér snemma í
skilning um það að kvikmyndir væru dægras-
tytting en ekki til að herma eftir, þar færi leikur
fram en ekki raunveruleiki.“
- Svo móðir þín
befur ekki óttast að
bíómyndirnar hefðu
neikvceð ábrif á þig
og uppeldi þitt?
„Nei hún blés á
allar slíkar vanga-
veltur og sagði
það aðeins skort á
skynsemi og eða
uppeldi foreldra
eða hreinan van-
þroska krakka
og eða fullorðna
ef kvikmynd
nægði til að
breyta innræti
viðkomandi.
Það væri upp-
eldi foreld-
ranna og samskipti
Steingríviur Kristinsson.
NÝJA.-BÍO
SS.-41’8'
„TeV)uskm“
Moskva o. fl-
Auk Þess skemmtfleé
aukatnynd.
þeirra við börnin sem réði öllu
varðandi hegðun barna í nútíð og
framtíð.“
- Hvencer byrjaði þú svo að
stjórna sýningum sjálfur í bíó?
„Það var 2. desember 1948, þá
var ég 14 ára og hét myndin
„Non-Stop New York“, íslenska
nafnið var Fljúandi morðinginn,
myndin var mjög spennandi og
að sjálfsögðu bönnuð yngri en 16
ára. En ástæðan fyrir því að ég
var „látinn sýna“ þetta kvöld,
fyrr en faðir minn hafði ætlað
mér, var sú að þetta kvöld þurfti
hann að sinna viðgerð á móttöku
og sendibúnaði á loftskeytastöð-
inni á Siglufirði sem var bilaður, en heyrst hafði
dauft neyðarkall sem síðar kom í ljós að kom frá
togara sem strandaði við Látrabjarg. Sá
atburður er þekktur og var hans minnst þegar 50
ár voru liðin frá strandinu í desember sl.“
- Svo þú hefur verið sýningastjóri í yfir 50 ár?
„Já það má segja það.“
- Hvað er eftirminnilegast úr bíóinu?
„Það er ekki gott að segja, margt og merkilegt
hefur gerst á þessum langa ferli. Ætli það sé ekki
sá atburður sem gerðist skömmu eftir að ég og
fjölskylda mín eignuðumst Nýja Bíó, þá höfðu
um skeið nær eingöngu verið sýndar spennu- og
hasarmyndir sem að sjálfsögðu gáfu mest í aðra
hönd hvað aðsókn snerti.
Einhver nafnalaus siðapostuli setti út á þessa
þróun í einu heimablaðinu og taldi að það vant-
aði „menningarupplyftandi“ myndir (hvað sem
það nú er, snobb að mínu mati). Einnig heyrði ég
raddir sama efnis frá nokkrum „heldri“ borgur-
um. Og þegar mér gafst kostur á að fá hjá Há-
skólabíó mynd með Pavarotty sem Evrópufrum-
sýningu þá sló ég til og ákvað að hafa viðkom-
andi mynd sem jólamynd. Myndin var vel aug-
4