Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1998, Blaðsíða 4

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1998, Blaðsíða 4
Fyrst í bíó 2ja ára Steingrímur Kristinsson (Kristins í bíó) er flestum Siglfirðingum kunnur. Hann var ekki nema 2ja ára þegar hann fór fyrst í bíó. Hér á eftir ætlar hann að segja okkur sitthvað frá bíódögum sínum Steingrímur, þú befur lengi verið kenndur við bíó Hvað varstu gamall þegar þú fórst fyrst í bíó ? „Móðir mín sagði mér að ég hefði verið 2ja ára þegar ég sá mína fyrstu bíómynd. Eg man sjálfur ekki neitt frá þeirri mynd en móðir mín sagði mér að það hefði verið teiknimynd. En síðan hefi ég nánast séð allar myndir sem tök voru á án tillits til þess hvort þær voru bannaðar börn- um eða ekki, ég var bara uppi í sýningarklefa hjá pabba þegar myndir voru bannaðar. Móðir mín kom mér snemma í skilning um það að kvikmyndir væru dægras- tytting en ekki til að herma eftir, þar færi leikur fram en ekki raunveruleiki.“ - Svo móðir þín befur ekki óttast að bíómyndirnar hefðu neikvceð ábrif á þig og uppeldi þitt? „Nei hún blés á allar slíkar vanga- veltur og sagði það aðeins skort á skynsemi og eða uppeldi foreldra eða hreinan van- þroska krakka og eða fullorðna ef kvikmynd nægði til að breyta innræti viðkomandi. Það væri upp- eldi foreld- ranna og samskipti Steingríviur Kristinsson. NÝJA.-BÍO SS.-41’8' „TeV)uskm“ Moskva o. fl- Auk Þess skemmtfleé aukatnynd. þeirra við börnin sem réði öllu varðandi hegðun barna í nútíð og framtíð.“ - Hvencer byrjaði þú svo að stjórna sýningum sjálfur í bíó? „Það var 2. desember 1948, þá var ég 14 ára og hét myndin „Non-Stop New York“, íslenska nafnið var Fljúandi morðinginn, myndin var mjög spennandi og að sjálfsögðu bönnuð yngri en 16 ára. En ástæðan fyrir því að ég var „látinn sýna“ þetta kvöld, fyrr en faðir minn hafði ætlað mér, var sú að þetta kvöld þurfti hann að sinna viðgerð á móttöku og sendibúnaði á loftskeytastöð- inni á Siglufirði sem var bilaður, en heyrst hafði dauft neyðarkall sem síðar kom í ljós að kom frá togara sem strandaði við Látrabjarg. Sá atburður er þekktur og var hans minnst þegar 50 ár voru liðin frá strandinu í desember sl.“ - Svo þú hefur verið sýningastjóri í yfir 50 ár? „Já það má segja það.“ - Hvað er eftirminnilegast úr bíóinu? „Það er ekki gott að segja, margt og merkilegt hefur gerst á þessum langa ferli. Ætli það sé ekki sá atburður sem gerðist skömmu eftir að ég og fjölskylda mín eignuðumst Nýja Bíó, þá höfðu um skeið nær eingöngu verið sýndar spennu- og hasarmyndir sem að sjálfsögðu gáfu mest í aðra hönd hvað aðsókn snerti. Einhver nafnalaus siðapostuli setti út á þessa þróun í einu heimablaðinu og taldi að það vant- aði „menningarupplyftandi“ myndir (hvað sem það nú er, snobb að mínu mati). Einnig heyrði ég raddir sama efnis frá nokkrum „heldri“ borgur- um. Og þegar mér gafst kostur á að fá hjá Há- skólabíó mynd með Pavarotty sem Evrópufrum- sýningu þá sló ég til og ákvað að hafa viðkom- andi mynd sem jólamynd. Myndin var vel aug- 4

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.