Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 1998, Page 5

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 1998, Page 5
lýst og meðal annars slegið upp sem „Evrópu frumsýning“ á myndinni sem hún var. A myndina fyrra kvöldið komu 2 mæðgur úr suður- bænum, fleiri voru kvik- myndahúsagestirnir ekki þetta kvöldið og táknrænt var (og fréttnæmt) að ég keyrði „öllum“ gestunum heim ásamt dyraverðinum þetta kvöld 2. dag jóla. Á seinni sýninguna mættu fjórir eða fimm, síðan hefur ekki verið tekið tillit til óska snobbaranna í bænum varðandi val á kvikmynd- um hjá Nýja Bíói á Siglufirði sem er elsta starf- andi kvikmyndahús á landinu.“ - Attu þér einhverja uppáhaldsmynd? „Ekki beint, en ég held mikið upp á allar myndir með Clint Eastwod, Harrison Ford, Arnold Schwarzenegger og raunar allt sem telja má vel gerðar og vel leiknar kvikmyndir ef á annað borð má nefna þær spennumyndir. Þá er ég mjög „veikur“ fyrir öllum framtíðar-mynd- um, myndum sem eiga að gerast í náinni fram- tíð.“ - Þú ert líka áhugamaður um Ijósmyndir og átt mikið safn Ijósmynda. Hvernig hefur þér gengið að halda þessu öllu saman? Já, ég hef verið áhugaljósmyndari í mörg ár, var fréttaritari Morgunblaðsins um tíma og sendi þeim myndir héðan frá Siglufirði. Auðvitað er mikil vinna að halda þessu saman og nú er ég að útbúa skrá um allt safnið í tölvu sem er gífurleg vinna. Ég þakka fyrir spjallið Steingrímur. -sjh 5

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.