Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1998, Side 7
Fílapennslakórinn er skipaSurþeim Friðfmni Haukssyni, Herði Jiílíussyni, bmðrunum Ólafi og Tómasi Kárasonum,
Þorsteini Sveinssyni og undirleikarinn er Sturlaugur Kristjánsson.
Afmælishátíö
Siglufjaröar
9.-12 júlí 1998
Haldið var upp á 80 ára kaupstaðar-
afmæli og 180 ára verslunarafmæli
Siglufjarðar í blíðskaparveðri helgina
9.-12. júlí í sumar. Var þar mikið um að vera og
margt um manninn.
Theodór Júlíusson og bæjarstjóri Siglufjarðar
undirbjuggu og stýrðu hátíðarhöldunum.
Stuðmenn hófu hátíðina á fimmtudagskvöldið
9. júlí með fjölskylduskemmtun á Hótel Læk.
Þór, félag safnara á Siglufirði opnuðu sýningu í
Bókhlöðunni og málverkasýning á listaverkum í
eigu Siglufjarðar var opnuð í Ráðhúsinu.
Á laugardeginum var hátíðardagskrá á Ráð-
hústorginu. Margir stigu þar í pontu og óskuðu
bænum til hamingju og færðu gjafir, m.a. Páll
Pétursson félagsmálaráðherra og Jón Sæmundur
Sigurjónsson formaður SÍRON.
Margt fleira var til skemmtunar, s.s. Kvenna-
kór Siglufjarðar, Vorboðar, Harmóníkusveit
Siglufjarðar að ógleymdum Fílapennslakórnum.
Svo hafði Tívolíi verið komið fyrir á Drafnarlóð
til mikillar gleði fyrir yngstu kynslóðina. Vísna-
glaðir alþingismenn og fleiri létu gamminn geysa
á hagyrðingakvöldi á Hótel Læk undir stjórn
Ólafs G. Einarssonar.
Á sunnudeginum 12. júlí var hátíðarguðs-
þjónusta í kirkjunni og að henni lokinni var öll-
um bæjarbúum boðið í grillveislu að Hóli.
Síldarball var á Síldarminjasafninu og auð-
vitað var síldarsöltun alla dagana.
Siglfirðingafélagið í
Reykjavík gaf bænum
þá sérstöku gjöf að
fá úrvalsdeildarlið
ÍA í knattspyrnu
norður og spila
við KS.
Leikurinn fór
svo að IA
sigraði 6-0.
Hér má sjá Theodór
Júlíusson og Guð-
mund ba;jarstjóra
spóka sig í góða
veðrinu.
7