Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 1998, Page 9
um húsum með einhverskonar
lánum til lengri tíma. Það er hag-
ur allra í bænum að þessum
gömlu húsum verði haldið við.
Þetta skapar líka iðnaðarmön-
num í bænum atvinnu. Einnig
hefur komið fyrir, yfir veturinn
að gömul hús hafa skemmst
vegna þess að heitavatnsinntök
hafa sprungið. Þarna gæti bær-
inn lagt til eftirlitsmann í verstu
kuldaköflunum svo að maður
verði ekki gráhærður af áhyggj-
um!!
-Ég frétti að Edda Rósa,
dóttir ykkar, hefði hvergi viljað
eyða brúðkaupsnóttinni nema
í þessu húsi?
-Jú, jú, mikil ósköp. Hún og
maður hennar, David Jarron,
sem er Skoti, kynntust í flugi hjá
Atlanta. Það kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti þegar hún birt-
ist okkur að óvör-
um í október 1996
og tilkynnti gamla
settinu að hún
ætlaði ekki bara
að gifta sig, heldur
skyldi athöfnin
fara fram á
Siglufirði, og ekki
nóg með það held-
ur á gamlárkvöld!!
/ sumar var húsið málað að utan, fagurgidt með grœnu þaki og
gluggum. A myndinni er aukþeirra Gunnars ogDóru, Nonni,
hjálparhella þeirra.
Við tókum þessu af
æðruleysi og hófum undirbúning-
inn. Það má segja að allt hafi
hjálpast að við að gera þessa at-
höfn eins eftirminnilega og raunin
varð á. Veðrið var dásamlegt. Séra
Braga og organistanum tókst sér-
lega vel upp. Og Skotarnir í sínum
þjóðbúningum settu sterkan svip á
þennan dýrðardag í lífi eldri dótt-
ur okkar. Þá fá
Alla Stefáns og
Rammafólkið
hæstu einkunn fyr-
ir ljúfa þjónustu á
Hótel Hvanneyri,
en þar dvöldust
gestir, og fyrir
lánið á fundarsal ÞR.
Veislan í Alþýðuhúsinu á eftir
var ekki lakari. Þar hjálpaðist að
frábær matur frá Læk, tertan frá
bakaranum, ljúf tónlist frá Elíasi
þorvaldssyni og síðast en ekki síst
um 100 gestir sem skemmtu sér
konunglega, ekki síður Skotarnir
og var flugeldasjóið um kvöldið
þeim ótrúleg upplifun.
Þau Edda og David hafa byggt
sér heimili í Skotlandi og fært
okkur einstaklega sterkbyggðan
og skapgóðan ömmu- og afa-
strák, sem á eftir að skoppa um
ganga og gólf í þessu gamla húsi.
- Svo þið hafið málað, gult og
grcent...
- Já húsið er orðið glæsilegt,
sannkölluð bæjarprýði. Og setur
heldur en ekki svip á umhverfið.
Sumarið er búið að vera einstak-
lega leiðinlegt til málningar-
vinnu, en það marðist.
- Hvað með húsgögn?
Flest hér inni hefur verið hér
frá gamalli tíð, svo hefur Dóra
verið að finna eitt og annað og
allt er þetta notað til daglegs
brúks. Það er sérstök tilfinning
að borða af þessum gömlu disk-
um og rifjast margt upp. Hjóna-
rúmið er gamla rúmið þeirra
Jónasar og Hrefnu og eins er
með rauða antiksófasettið í stof-
unni. Okkur líður geysilega vel
hérna og tilfinningarnar til húss-
ins eru alltaf að vaxa.
Og nú var kominn tími til að
skreppa í bæinn og fá sér ís! -sjh
9