Búnaðarrit - 01.01.1976, Page 77
SKÝRSLURSTARFSMANNA
71
1972, bls. 80, en nokkrum atríðum verður hér bætt við
um starfsemina þar það ár. Frystir voru 56600 skammtar.
Voru 18185 notaðir á áriuu, og birgðir í árslok því 38415
skammtar, en þetta var fyrsta árið, sem sæði var djúp-
fryst í Laugardælum. Nautin, sem mest voru notuð þar,
voru Skoti VI 64501 með 3545 skammta, Flekkur 63018
með 1325, Glampi 63020 með 1200, Freyr 66005 með
1135, Blómi 65014 með 980 og Dofri 70011 með 950.
Árið 1973 voru alls sæddar 31236 kýr 1. sæðingu á
landinu öllu. Var það fyrsta árið, sem eingöngu djúp-
fryst sæði var notað. Frá dreifingarstöðvum, sem skiptu
við Nautastöðina, voru 19030 kýr sæddar 1. sæðingu og
12206 frá Laugardælum og dreifingarstöðvum á Suður-
landi. Svarar það til þess, að 72,5% af kúm landsmanna
það ár liafi verið sæddar miðað við hausttalningu sama
ár. Af kúnum héldu við 1. sæðingu 73,9% á starfssvæði
Nautastöðvarinnar og 70,0% á starfssvæði Kynbótastöðv-
arinnar í Laugardælum, sem svarar til 72,4% fyrir landið
allt.
Útsent boldanautasæði frá Laugardælum 1973 nam
2943 skömmtum, þar af 433 frá Nautastöðinni, auk 2580
skammta, sem sendir voru þeirri stöð. Frá Nautastöð-
inni voru sendir 3974 skammtar auk þeirra, sem fóru að
Laugardælum. AIls liafa því verið sendir 1 iI notkunar
allt að 6917 skammtar af lioldanautasæði frá stöðvunum
báðum á því ári.
Á Kynbótastöðinni í Laugardælum voru fryslir 55800
skammtar árið 1973. Notaðir voru á árinu 21285 og 3050
látnir í té Nautastöð Bf. Isl. I árslok námu birgðir 70313
stráum. Mest voru notuð þessi naut á Suðurlandi: Skoti
VII 65502 1850 skammtar, Fieyr 66005 1195, Toppur
71019 1040 og Kollur 67006 920 skammtar.
Árið 1974 voru á öllu landinu sæddar 1. sæðingu 31301
kýr, j). e. 18897 frá dreifingarstöðvum, sem skipta við
Nautastöð Bf. Isl., og 12404 frá Kynbótastöðinni í Laug-
ardælum og dreifingarstöðvum á starfssvæði Bsb. Suður-