Búnaðarrit - 01.01.1976, Page 263
LANDBÚNAÐURINN
257
vinna á bústærðareiningu, ærgildi, lækkað úr 12,2 klst.
í 9,5 klst. eða 22%. Slíkt sýnir frábæra framför og glæsi-
lega framleiðniaukningu, sem mun orsakast af aukinni
tæknivæðingu, bættum bústofni, aukinni ræktunarmenn-
ingu og fleiri bú verða hagkvæmari að stærð miðað við
aðstæður.
Þótt meðalbúreikningabúið sé nokkru stærra en meðal-
búið í landinu og framleiðniaukning búreikningabúsins
án efa nokkru meiri en meðallandsbúsins, vegna þess að
bændur, sem færa búreikninga, læra af því, livernig
hagkvæmast er að standa að búskapnum, þá er það
staöreynd, að meðalbúið í landinu liefur stækkð um, sem
næst 60 ærgildi frá 1971 til 1974 og framleiöni aukizt að
mun á síðustu árum.
Atvinnuvegur í varnarstö&u. Þrátl fyrir liinar miklu
framfarir í landbúnaði þjóðarinnar á síðustu árum og
áratugum, sem leitt liefur til síaukinnar hagkvæmni í
búskapnum og ótrúlega inikillar framleiðniaukningar,
jafnvel meiri en bjá flestiun öðrum atvinnuvegnm þjóð-
arinnar, er landbúnaðurinn og bændastéttin nú komin í
varnarstöðu. Því valda liinar skefjalausu árásir, sem land-
búnaðurinn hefur orðið fyrir síðustu missirin, sérstak-
lega í dagblaðinu Vísi. Þetta eru þær ósvífnustu árásir,
sem nokkur stétt eða atvinnuvegur hér á landi liefur
orðið fyrir, a. m. k. í minni núlifandi manna. Meira að
segja liefur því verið baldið fram, að réttast væri að
leggja niöur landbúnað liér á landi, að mestu eða öllu
leyti, þ. e. útrýma bændastéttinni, flytja inn búvörur í
stað þess að framleiða þær bér á landi og finna atvinnu
banda þeim, sem landbúnað stunda nú, við stórvirkj-
anir orkulinda þjóðarinnar og bjá stóriðjufyrirtækjum,
erlendum eða hálferlendum, sem fengjust til að kaupa
íslenzku orkuna til að rnala sér gull.
Ég bef að mestu leitt þessar og aðrar árásir á land-
búnaðinn bjá mér, en þar hefur mér ef til vill skjátlast.
Fyrir ári síðan í yfirliti um landbúnaðinn 1974 vék ég
17