Búnaðarrit - 01.01.1976, Page 411
NAUTGIUPASÝNINGAK 405
Iivað Bjarni Arason fjallar um sýningar í þeim félög-
um, þar sem hann var aðaldómari.
BorgarfjarSar- og Mýrasýsla
Nf. S.-Borgarf jarSar. Skoðaðar voru 94 kýr lijá 19 eigend-
um. Hlutu 34 kýr I. verðlaun, sem er lielmingi fleira en
á næstu sýningu áður. Flestar I. verðlauna kýr átti Jó-
Iiannes Jónsson, Geitabergi, eða 7. Ein þeirra Tinna 22
hlaut verðlaunagrip félagsins, sem veittur var í annað
sinn. Hann skal veita á liverri sýningu þeirri kú, er að
áliti dómnefndar er talin bezt að byggingu og jafnframt
skilaði mestum afurðum. Tinna 22 er fædd 22. desember
1964 dóttir Hrafns A6-55008 og Dumbu 13. Hún fékk 83,0
stig fyrir liyggingu. Um Tinnu er nánar fjallað í Bún-
aðarriti 86. árg. bls. 297. Á sýningunum Í970 kom Tinna
einnig til greina að liljóta þessa viðurkenningu, en hlut-
skarpari varð Mútta 32, Lyngholti. Múlta fékk flest stig
fyrir byggingu á sýningunum í félaginu eða 86,0 stig. Bæði
Mútta og Tinna liljóta nú 1. verðlaun af 1. gráðu í annað
sinn. Aðrar kýr, er hlutu liáa útlitsdóma, voru ögn 7,
Geitabergi og Ljúfa 9, Hávarðsstöðum, sem báðar fengu
83,5 stig.
Nf. Andakílshrupps. Tíu eigendur sýndu 52 kýr og
lilutu 30 þeirra I. verðlaun. Á síðustu sýningu lilutu 19
ký r I. verðlaun. Flestar kýr voru sýndar á félagsbxiinu
Nýja-Bæ eða 11 alls, og fengu ]>ær allar I. verðlaun. Á
Nýja-Bæ eru margar mjólkurlagnar kýr og ber Iielzt að
nefna 2 kýr, sem fengu I. verðlaun af 1. gráðu, Eyju 60
(afurðir í 9,6 ár: 4914x4,26 = 209 kg mjólkurfita), dóttir
Goða V59-55040, sem hlaut nú I. verðlaun af 1. gráðu
í annað sinn, og Júllu 75 (afurðir í 5,6 ár: 4709x4,20 =
198 kg mjólkurfita), dóttir Frosta V83-59021. Undan Júllu
75 og Ljóma V108-66011 befur verið valinn nautkálfur
á Nautastöðina. Það er Borgþór 72015. Eyja 60 hlaut
einnig beztan útlitsdóm ásamt Hlíf 88 (F. Fjölnir V110-
62012), Nýja-Bæ eða 84,5 stig.