Búnaðarrit - 01.01.1976, Page 436
430
liUNABAli IUT
ræktunarstarfinu, enda ei":a félagsmenn inargar mjög
álitlegar kýr.
Flestar I. verSlauna kýr átti Sveinn Guöjónsson, Stekkj-
arvöllum, 8 talsins. Af þeim hlaut Ira 20 hæstu einkunn
fyrir byggingu, er veitt var á sýningunum að þessu sinni,
87,0 stig. Sömu einkunn fékk Bleikja 24, Stakkhamri.
Þaír eru báðar dætur Frosta V83-59021.
Aðrar kýr, er hlutu háa útlitsdóma, voru Hyrna 12,
Miklalioltsseli, 85,5 stig og III. verðlaun, Laufa 12, Naust-
um, 85,0 stig og I. verðlaun, og Hringalín 34, Triið, sem
fékk 84,0 stig og I. verðlaun.
1 annað sinn var veittnr verðlaunaskjöldur nautgripa-
ræktarfélagsins. Hann skal veittur beztu kúnni að áliti
dómnefndar, að lokinni sýningu liverju sinni. Á sýning-
unum 1970 ldaut Bleik 30, Snorrastöðum, verðlaunagrip-
inn í fyrsta skipti. Tvær kýr komu til greina að hljóta
gripinn, að þessu sinni, en þær voru Gráskinna 16 á
Neðra-Hóli og Ira 20, Stekkjarvöllum.
Gráskinna 16 er fædd 2. nóv. 1963. Faðir hennar er
Silfri V61-56027, en móðir er Tunga 3. Gráskinna er grá
og kollótt. Hún hlaut 83,5 stig fyrir byggingu. Hún hefur
verið 7,1 ár á skýrslu og mjólkað að méðaltali 5325 kg
mjólkur með 4,31% fitu eða 22951 fitueiningar. Ira 20
er fædd 19. okt. 1966. Faðir hennar er Frosti V8.3-59021 og
móðir LjómaKnd 1. íra er rauð og kollótt. Ht'm er stór
og virkjamikil með sterka byggingu, en slaka júgurgerð.
tra var með mesta brjóstummál sýndra kúa í félaginu eða
196 cm. Hlaut hún 87,0 stig fyrir byggingu eins og getið
er um hér að framan. Hún hafði verið 5,2 ár á skýrslu
og meðalafurðir þann tíma voru 4754 kg með 3,80%
fitu eða fitueiningar.
Úrskurður dómnefndar var sá, að Ira 20 skyldi hljóta
verðlaunagripinn, og var eiganda liennar Sveini Guðjóns-
syni, Stekkjarvöllum, afhendur gripurinn til varðveizlu
til næstu sýningar ásamt umsögn dómnefndar um kúna.