Heilbrigðismál - 01.03.1983, Síða 5

Heilbrigðismál - 01.03.1983, Síða 5
Útfjólublá geislun: hætta á slíku af völdum útfjólublárr- ar geislunar. Sólin Sólin gefur einkum frá sér út- fjólubláa geislun, sýnilega geislun (ljós) og innrauða geislun. Utan gufuhvolfs jarðar eru um 10% af orku sólargeislanna útfjólublá geislun, en nálægt helmingur hennar stöðvast í gufuhvolfinu. Þetta á sér- staklega við um UV-C geislana, en þeir stöðvast að fullu, og þá einkum í svonefndu ósonlagi gufuhvolfsins. Þegar geislar sólar ná yfirborði jarð- ar innihalda þeir dálítið af UV-A geislum, mun minna af UV-B geislum og enga UV-C geisla. Þegar sólin er lágt á lofti þurfa geislar hennar að fara í gegnum þykkari loftlög en þegar hún er hátt á lofti. Vegna þess að geislar með stutta bylgjulengd stöðvast betur í gufuhvolfinu en geislar með langa bylgjulengd er mun meira af útfjólu- bláuni geislum í sólarljósinu um niiðjan daginn en kvölds og morgna. A sama hátt má útskýra hvers vegna sólin virðist rauðleit við sólar- uppkomu og sólarlag. Það er einmitt vegna þess að rauða ljósið kemst Sólarljós og sólarlampar Sólarlandaferðir íslendinga hafa notið vaxandi vinsælda síðustu tvo áratugi. Á allra síðustu árum hafa svonefndir sólaríum-lampar náð nokkurri útbreiðslu hér, bæði á lík- amsræktarstöðvum og í heimahúsum. Sú geislun sem gefur húðinni fegurri lit getur einnig orðið til skaða ef ekki er gætt þess öryggis sem með þarf. Um slíka geislun og varnir gegn henni er fjallað í þessari grein eftir Sigurð M. Magnússon eðlisfræðing. Það sem við köllum ljós eða sýni- lega geislun eru rafsegulbylgjur með ákveðinni bylgjulengd (400-780 nanómetrar, en 1 nm er 10*9 m). Ljósið er hluti af rafsegulrófinu en þær bylgjur sem liggja næst ljósinu, tneð minni bylgjulengd (100-400 nrn), nefnast útfjólublá geislun. Utfjólublá geislun og sýnileg geislun eru dæmi um svonefnda ekki-jónandi geislun, en það er samheiti yfir rafsegulgeislun sem ekki er nægilega orkumikil til þess að valda hleðslubreytingum (jónun) 1 því efni sem hún fellur á. Gamma- °g röntgengeislun er nægilega orku- ntikil til þess að geta valdið hleðslu- Lreytingum í því efni sem geislunin fellur á og þess vegna telst hún til Jónandi geislunar en önnur rafsegul- geislun telst til ekki-jónandi geislunar. Utfjólublá geislun skiptist í Þrennt: UV-A geislun sem hefur byjgjulengd 315-400 nm, UV-B geislun sem hefur bylgjulengd 280— 315 nm og UV-C geislun sem hefur bylgjulengd 100-280 nm. kylgjulengd útfjólublárrar geisl- unar er það stutt að augað greinir bana ekki. Engu að síður getur hún valdið skaða á augum (snjóblindu og skertu litaskyni) og húð (sólbruna), ef um mikla geislun er að ræða. Ó- lólleg geislun yfir langan tíma hefur Pau áhrif á húðina að hún verður rrukkótt og skorpin. Einnig er vitað að samband er milli útfjólublárrar geislunar og húðkrabbameins. Skaðleg áhrif útfjólublárrar geislun- ar stafa einkum af UV-B og þó sér- staklega af UV-C geilsuninni. Hvað snertir erfðafræðilegar breytingar, þ.e. að geislunin hafi áhrif á afkomendur þeirra sem fyrir geisluninni verða, þá er ekki talin HEILBRIGÐISMÁL 1/1983 5

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.