Heilbrigðismál - 01.03.1983, Blaðsíða 26
herra.“ Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur hefur verið rekin frá árinu
1953, og starfar hún enn samkvæmt
hinum eldri lögum um heilsuvernd.
Frá því að lög um heilbrigðisþjón-
ustu tóku fyrst gildi 1. janúar 1974
hafa heilsugæslustöðvar hafið starf-
semi sína, hver af annarri, og eru
þær nú orðnar fjórar alls. Þær eru í
Árbæjarhverfi, Breiðholti III,
Fossvogi og Miðbænum. Allar eru
þær H2 stöðvar.
Heilsuverndarstöðin
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
hóf starfsemi sína hinn 4. desember
1953. Stöðin var þá enn í smíðum.
Fyrsta deildin er tók til starfa var
barnadeild. Fleiri deildir bættust
smám saman við, en stöðin var ekki
formlega vígð fyrr en 2. mars 1957.
Þá höfðu flestar þær deildir er fyrir-
hugað var að reka tekið til starfa. Á
þeim rúma aldarfjórðungi, sem
heilsuverndarstöðin hefir starfað,
hefir starfsemi hennar breyst veru-
lega, verið aukin og endurbætt og
starfsmönnum hennar fjölgað.
Heilsuverndarstöðin tók við því
starfi sem Hjúkrunarfélagið Líkn
hafði haft með höndum frá árinu
1915, er það var stofnað. Líkn starf-
rækti heimahjúkrun í borginni frá
stofnun félagsins, en frá árinu 1902
hafði Hjúkrunarfélag Reykjavíkur
annast heimahjúkrun í borginni og
rak hana þangað til Líkn tók við.
Árið 1919 gekkst Hjúkrunarfélagið
Líkn fyrir stofnun berklavarnastöðv-
ar, sem varð fyrsti vísir að skipu-
lögðum berklavörnum hér á landi.
Árið 1927 var ungbarnavernd Líkn-
ar stofnuð, og mæðraeftirlit hefir
verið skipulagt frá árinu 1928.
Oll þessi starfsemi fluttist smám
saman inn í Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur. Rekstri stöðvarinnar
er þannig háttað, að Reykjavíkur-
borg greiðir þriðjung af rekstrar-
kostnaðinum, Sjúkrasamlag Reykja-
víkur þriðjung og Ríkissjóður þriðj-
ung. Heilbrigðisráð Reykjavíkur fer
með stjórn stöðvarinnar, en dag-
legan rekstur hennar annast fram-
kvæmdanefnd. í henni eiga sæti
borgarlæknir, hjúkrunarforstjóri og
framkvæmdastjóri.
Árið 1944 voru sett fyrstu lögin
um heilsuvernd og heilsuverndar-
Táknmynd fyrir heilsugœslu. Úr
„Worid Health", tímariti Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar.
stöðvar, og tveim árum síðar skipaði
borgarstjórn Reykjavíkur nefnd til
þess að athuga og gera tillögur um
byggingu heilsuverndarstöðvar í
Reykjavík. Teikningar af heilsu-
verndarstöðinni voru fullfrágengnar
árið 1949, arkitektar voru þeir Einar
Sveinsson, húsameistari Reykja-
víkur, og Gunnar Ólafsson.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
stendur á horni Barónsstígs og
Egilsgötu. Heildarrúmmál hússins er
um 14.000 rúmmetrar. Á efstu hæð
hússins, 5. hæð, er eldhús og borð-
stofa. Á 4. hæð er hjúkrunardeild
frá Borgarspítalanum, þar eru um 30
sjúklingar. Á 3. hæð er Heilbrigðis-
eftirlit Reykjavíkursvæðis, en það
eru Reykjavíkurhérað og Seltjarnar-
nes. Á 2. hæð eru skrifstofur borgar-
læknis, hjúkrunarforstjóra og fram-
kvæmdastjóra. Þar eru gjaldkeri, rit-
arar, bókasafn, fundarsalaur, tann-
fræðingur, barnadeild og auk þess
símaþjónusta og anddyri. Þá er á 2.
hæðinni, í álmu, er snýr út að
Egilsgötu, lungna- og berklavarna-
deild, og er gengið inn í þá deild frá
Egilsgötu.
Á 1. hæð er mæðradeild, húð- og
kynsjúkdómadeild, heimahjúkrun-
ardeild, tannlækningar og skrifstofa
yfirskólatannlæknis, rannsóknadeild
og ýmsar aðrar vistarverur. Auk
þess er bæjarvakt lækna, varðlækna-
þjónustan, þar til húsa. Hún hefir
verið þar frá miðju ári 1982 og hefir
þjónustu frá kl. 17 á daginn til kl. 8
að morgni, auk þess allar helgar og
helgidaga. Neyðarvakt Tannlækna-
félags íslands er í heilsuverndarstöð-
inni, hún er opin um helgar og há-
tíðisdaga.
Þær deildir, sem starfa innan
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur,
eru lungna- og berklavarnadeild,
barnadeild, barnadeild í Asparfelli
12, mæðradeild, kynfræðsludeild,
húð- og kynsjúkdómadeild, áfengis-
varnadeild, atvinnusjúkdómadeild
og heimahjúkrunardeild. Við allar
þessar deildir eru starfandi yfirlækn-
ar, nema við heimahjúkrunardeild,
og hjúkrunardeildarstjórar, nema
við húð- og kynsjúkdómadeild.
Barnadeildin hefir um árabil haft
útibú í Langholtsskóla, og áfeng-
isvarnadeildin er nú til húsa í Lág-
múla 9, húsnæði SÁÁ.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
sér um heilsugæslu í eftirtöldum
skólum: Álftamýraskóla, Austur-
bæjarskóla, Breiðagerðisskóia,
Breiðholtsskóla, Hagaskóla, Hlíða-
skóla, Hólabrekkuskóla, Hvassa-
leitisskóla, Isaksskóla, Landakots-
skóla, Langholtsskóla, Laugalækjar-
skóla, Laugarnesskóla, Melaskóla,
Réttarholtsskóla, Seljaskóla, Vest-
urbæjarskóla, Vogaskóla, Æfinga-
skóla K.H.Í., Ölduselsskóla og Að-
ventistaskólanum. í Öskjuhlíðar-
skóla starfar hjúkrunarfræðingur á
vegum menntamálaráðuneytisins.
Við Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur eru eftirtaldar stöður: Læknar
eru í 9,3 stöðum, auk þess eru 11
skólalæknar í hlutastörfum, hjúkr-
unarfræðingar í 35,4 stöðum, Ijós-
mæður í 3 stöðum, tannlæknar í 19
stöðum, ritarar í 8,5 stöðum (þar af
4 í móttöku), við símavörslu og af-
greiðslu eru starfsmenn í 1,5 stöð-
um, framkvæmdastjórar í 2 stöðum,
heilbrigðisfulltrúar í 7 stöðum,
sjúkraliðar í 11,4 stöðum, og að-
stoðarmenn tannlækna eru í 23 stöð-
um. Þá starfa við stöðina röntgen-
tæknir, tannfræðingur í hálfri stöðu,
bókavörður í hálfri stöðu, meina-
tæknir, gjaldkeri, umsjónarmaður
og starfsfólk við ræstingu og fleiri
störf. Alls eru þetta 196 starfsmenn í
136 stöðum.
í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
hefur verið unnið mjög merkilegt
brautryðjendastarf í heilsuvernd
undanfarna áratugi. Slíkt starf er nú
26 HEILBRIGÐISMÁL 1/1983