Heilbrigðismál - 01.03.1983, Blaðsíða 30
Arkitcktar: Gcirharður Þorsteinsson og Hróbjartur Hróbj
til læknis. Heilsugæslustöðin í Foss-
vogi er H2 stöð.
Heilsugæslustöð Miðbæjar
Heilsugæslustöð Miðbæjar tók til
starfa 1. júní 1983. Hún er til húsa í
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur,
álmu þeirri er snýr að Egilsgötu, og
hefur þar um 140 fermetra rými.
Lungna- og berklavarnadeild Heil-
suverndarstöðvarinnar verður í
sambýli við þessa stöð og mun hafa
um 200 fermetra rými til umráða.
Við Heilsugæslustöð Miðbæjar
starfar einn læknir, hjúkrunarfor-
stjóri og ritari. Sameiginlega
aðstöðu ýmiss konar hefir stöðin
með Heilsuverndarstöðinni.
Þess má geta að árið 1976 tók
Heilbrigðismálaráð Reykjavíkur-
borgar á leigu húsnæði á 3. hæð í
Domus Medica. Það er um 110 fer-
metrar að stærð. Allmiklar breyting-
ar voru gerðar á þessu húsnæði. Þar
starfa nú 4 læknar, hjúkrunarfræð-
ingur og ritarar. Læknarnir starfa
sem heimilislæknar samkvæmt
samningi um heimilislækningar og
njóta ýmissar aðstöðu er Heilbrigð-
ismálaráð leggur þeim til.
Byggingamál heilsugæslu-
stöðva í Reykjavík
Eins og fram kemur í umfjöllun
þessari um heilsugæslustöðvar í
Reykjavík, er Heilsuverndarstöðin
eina stöðin, sem byggð hefir verið til
þeirrar ákveðnu starfsemi að annast
heilsuvernd og aðra heilbrigðisstarf-
semi. Hinar stöðvarnar eru í hús-
næði, er upphaflega var ætlað til
annarra nota en heilsugæslu, og ó-
neitanlega bera þær þess merki, þótt
eitt og annað hafi vel til tekist við
hönnun þeirra.
Gert er ráð fyrir að starfsemi
Heilsuverndarstöðvarinnar breytist
smátt og smátt eftir því, sem heilsu-
gæslutöðvunum fjölgar í borginni og
þær taki yfir marga þætti þeirrar
heilsuverndar er stöðin hefur haft
með höndum fyrir borgarbúa og ná-
granna þeirra. Miðað er við að
borginni verði skipt í eftirtalin
heilsugæslusvæði:
lbúafjöldi
Árbæjarsvæði 6.000
Breiðholtssvæði 1 5.000
Breiðholtssvæði II 6.000
Breiðholtssvæði III 10.000
Fossvogssvæði 8.000
Gerðasvæði 6.000
Heima- og Vogasvæði 6.000
Kleppsholts- og
Laugarnessvæði 8.000
Háaleitis- og
Túnasvæði 7.000
Norðurmýrar- og
Hlíðasvæði 6.500
Miðbæjarsvæði 7.300
Vesturbæjarsvæði 6.000
Melasvæði 6.000
Samkvœmt deiliskipulagi er gert ráð
fyrir að byggð verði heilsugœslustöð
norðan við menningarmiðstöðina við
Gerðuberg í Breiðholti III.
Sá fyrirvari gildir um þessa skipt-
ingu, að hún getur breyst vegna
breytinga á íbúafjölda og vegna
þeirra lausna á húsnæðismálum
stöðvanna, sem hagkvæmastar þykja
og tiltækar eru.
Þess má geta að heilsugæslustöðin
á Seltjarnarnesi mun eiga að þjóna
íbúum vestasta hluta Vesturbæjarins
í Reykjavík.
í ársbyrjun 1983 var skipuð nefnd
til þess að fjalla um hönnun og for-
gangsröðun heilsugæslustöðva í
Reykjavík. í nefndinni eiga sæti fjór-
ir fulitrúar Reykjavíkurborgar og
tveir fulltrúar heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins. Með henni
starfa borgarlæknir, framkvæmda-
stjóri heilsugæslustöðva og fulltrúi
borgarverkfræðings. Gert er ráð
fyrir að þessi bygginganefnd heilsu-
gæslustöðva skili fyrstu tillögum á
þessu ári.
Eftirmáli
Hér lýkur þessum greinaflokki um
heilsugæslustöðvar. í fyrstu var gert
ráð fyrir að einungis yrði fjallað um
húsnæðismál heilsugæslustöðva. Það
efni varð nokkuð þurrt, og því
reyndi ég að flétta inn einu og öðru
um starfsemi stöðvanna og starfs-
mannafjölda.
Fyrstu tvær greinarnar voru birtar
árið 1980, þrjár greinar á árinu 1981
og tvær árið 1982. Nú hefir heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið
ákveðið að gefa þessar greinar út í
sérstöku hefti. Krefst það endur-
skoðunar á textanum því að allmikl-
ar breytingar hafa orðið á húsnæðis-
málum og starfsemi heilsugæslu-
stöðvanna á þessum þrem árum.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir er deildar-
stjóri sjúkrahúsa- og heilsugœsludeildar
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins. Hún er hjúkrunarfrœðingur
að mennt og hefur lokið framhalds-
námi í hjúkrunarkennslu og spít-
alastjórn.
Fyrri greinar um húsnœðismál
heilsugœslustöðva birtust 13. tbl. 1980
(Austurlandshérað), 4. tbl. 1980
(Suðurlandshérað), 2. tbl. 1981
(Reykjaneshérað), 3. tbl. 1981 (Vestur-
landshérað), 4. tbl. 1981 (Vestfjarða-
hérað), 1. tbl. 1982 (Norðurlandshérað
vestra) og 3. tbl. 1982 (Norðurlands-
hérað eystra).
30 HEILBRIGÐISMÁL 1/1983