Heilbrigðismál - 01.03.1992, Page 13

Heilbrigðismál - 01.03.1992, Page 13
HEILBRIGÐISMÁL / Ljósmyndarinn - HEILBRIGÐISMÁL / Eggert Pétursson Spurt Konur skoða konur Þrátt fyrir að aðsókn að leitarstöð Krabba- meinsfélagsins sé mun meiri en áður mæta ekki allar íslenskar konur reglulega í skoðun. Sumar konur setja það fyrir sig að karlkyns læknar skoði þær. Eru margar konur í hópi þeirra lækna sem skoða í leitarstöðinni í Reykja- vík? Geta konur óskað eftir því að konur skoði þær? Kristjdn Sigurðsson, yf- irlæknir ri leitarstöð Krabbameinsfélagsins, svar- ar: Um 96% allra kvcnna á aldrinum 25-69 ára hafa mætt einhvern tím- ann í skoðun á vegum leitarstöðvar Krabba- meinsfélagsins. Þetta háa hlutfall segir þó ekki alla söguna þar sem kon- ur þurfa að mæta reglu- lega á tveggja til þriggja ára fresti svo vel sé. Um 81% kvenna á þessum aldri hafa komið í skoð- un síðustu þrjú ár. Ástæður þess að kon- ur mæta sjaldan eða ekki í skoðun eru margvísleg- ar. Oftast bera þær fyrir sig gleymsku eða því að illa hafi staðið á þegar þær áttu síðast kost á slíkri skoðun. Ef konur segjast ekki fara í skoð- un vegna þess að ekki er gefinn kostur á því að kona framkvæmi skoð- unina er um misskilning að ræða. Fjórar konur eru í hópi þeirra lækna sem eru ráðnir til að annast skoðanir. Þegar þessar konur eru fjarver- andi, vegna veikinda eða sumarleyfa, er leitast við að fá rcynda kvenkyns aðstoðarlækna af kvennadeild Landspítal- ans til afleysingar. Kon- um skal sérstaklega bent á að þegar þær panta tíma er hægt að hafa áhrif á það hvaða læknir skoðar þær. Fita og sjúkdómar Norskur landbúnaðar- vísindamaður hefur sett frarn kenningar um fitu og sjúkdóma, sem vakið hafa athygli þar í landi og sumir vilja túlka sem svo að mettuð fita sé ekki eins viðsjárverð og áður hefur verið álit- ið. Er málið svona ein- falt? Guðmundur Þorgeirsson, yfirlæknir á Landspít- alanum, svarar: Dr. Harald Skjervold fjallar í grein sinni „Livs- stil-sykdommer og kost- hold" um samband fitu- sýra í fæðu og ýmissa sjúkdóma sem algengir eru í vestrænum þjóðfé- lögum svo sem æðakölk- unar, blóðsegamyndun- ar, gigtar, astma, sóra (psoriasis) og krabba- meins. Grundvallarnið- urstaða hans er sú að ákveðið hlutfall omega-6 og omega-3 fitusýra skipti sköpum og að omega-3 fitusýrurnar hindri umbreytingu lín- olínsýru í arakídónsýru og stjórni myndun fjöl- breytilegra sjálfboðefna eins og prostaglandína, leukotríena o.fl. Fjölmargar rarinsóknir benda til að fiskneysla, og þar með neysla á om- ega-3 fitusýrum, hamli gegn æðakölkun og blóðsegamyndun. Hins vegar fer því fjarri aö or- sakasambandið sé ljóst. Vissulega er hugsanlegt að sjálfboðefni skipti þarna máli. Þó verður að hafa í huga að sum þeirra vinna gegn æða- kölkun og blóðsega- myndun, eins og t.d. prostasýklín sem mynd- ast í æðaþeli úr arakí- dónsýru. Það er því mik- il einföldun að halda því fram að minnkuð um- myndun línólínsýru í arakídónsýru leysi öll þau vandamál sem minnst er á í grein Skjer- volds. í greininni er heldur ekkert fjallaö um þá þætti í fæðu sem skýrast samband hafa við æðasjúkdóma, það er að mettuð dýrafita leiði til hækkunar á LDL kól- esteróli sem sennilega er aðalorsakavaldur æða- kölkunar. Hætta af húðflúri Hvada reglur gilda um húðflúr hér á landi? Ólafur Ólafsson, land- læknir, svarar: Það er skemmst frá því að segja að hér eru engar skráðar reglur um húðflúr. Töluverður hópur ungs fólks gcngur ár hvert undir húðflúrun (tattóveringu) hér á landi. Erlendis fjölgar þeim ört sem þetta gera (NEJM, 16. jan. 1992). Hér er yfirleitt um ungt fólk að ræða sem tekur skyndiákvörðun um slíka merkingu, oft undir áfengisáhrifum. Síðar leita fjölmargir til lýta- lækna til þess að fá merkin afmáð. (BMJ, 17. ágúst 1991). Nokkrir aðilar hafa óskað eftir viðurkenn- ingu landlæknis til að sinna þessu starfi. Hér vantar reglur um þjálf- un, starfsaðstöðu og starfsleyfi þeirra er stunda þessa iðju. Nauð- synlegt er þó að strangar reglur gildi um notkun tækja, um sóttvarnir o.fl. Hættur sem geta stafað af lélegum tækjakosti og sóttvörnum eru t.d. lifr- arbólga, eyðni, ofnæmi, o.fl. Full ástæða er til að starfsemi þessi veröi bönnuð hér á landi á unglingum 18 ára og yngri og að settar verði skýrar reglur að öðru leyti, enda er hér verið að sprauta óþekktu efni í líkama fólks. HEILBRIGDISMÁL 1/1992 13

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.