Heilbrigðismál - 01.03.1992, Side 16
HEILBRIGÐISMÁL / Jónas Ragnarsson
Mengun er vandi allra manna
Ávarp forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur,
á umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Rio de Janeiro, 12. júní 1992
Herra forseti!
Ég vil í upphafi máls míns flytja
yður og ríkisstjórn Brasilíu þakkir
fyrir að hafa tekið að yður að halda
umhverfisráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna, fjölmennasta leiðtoga-
fund sem nokkru sinni hefur verið
efnt til.
Hvað er það sem greinir mann-
inn frá öðrum lífverum? Pað er
hæfileiki hans til að tjá sig í orðum
og sömuleiðis umfang athafna
hans, sem nú geta umbreytt nátt-
úrunni og ekki aðeins hagrætt
henni. Ástæðan fyrir veru okkar
hér er í raun og veru sú að maður-
inn hefur dregið sig út úr náttúr-
unni og leitast við að ráðskast með
hana og þrælka hana í stað þess að
starfa með henni.
Von okkar byggist að sjálfsögðu
einnig á hæfni mannsins til orðs og
æðis. Við erum að byrja að gera
okkur grein fyrir vandanum og
Óbætanlegt tjón
Talið er að um þrjátíu
milljónir tegunda plantna
og dýra lifi á jörðinni, en að-
eins um helmingi þeirra hef-
ur verið lýst í ritum náttúru-
fræðinga og miklu færri
hafa verið rannsakaðar. Nú
lítur út fýrir að um fjórðungi
tegunda verði útrýmt á
næstu þrjátíu árum. Ekki er
vitað nákvæmlega hve
margar tegundir líða undir
lok dag hvern en fjöldinn er
áætlaður milli 40 pg 140.
Jafnvel lægri talan er geig-
vænleg. Hafa skal í hugá áð
missir hverrar einustu teg-
undar er öbætanlegur.
Hvarf tégundar er urn aldur
og aavi því að, segja má að
hún eigi rætur að rekja 3500
milljón ár aflur í tímann, til
uppháfs lífs á jörðinni. ,í>“/.
skipuleggja viðbrögð. Rétt er að
hafa hugfast að þær spurningar
sem við finnum ekki svör við hér
veröa áfram á dagskrá mannkyns-
ins, einfaldlega af því að þær hafa
verið bornar fram, og þar verða
þær ekki látnar niður falla fyrr en
lausn hefur fundist.
Fari hins vegar svo að okkur
mistakist að fylgja yfirlýsingum
okkar eftir með samstilltu og ár-
angursríku átaki um heim allan þá
eigum við á hættu að glata trú
heimsins á lreilindi okkar og hæfni
til að glíma við vandann. Það er
því skylda okkar að gera ekki að-
eins áætlanir heldur vekja traust
manna og gefa gott fordæmi.
Mengun er alþjóðavandi, vandi
allra manna. Skáldið John Donnc
sagði að enginn væri eyland og í
ljósi umhverfismála eru heldur
engin eylönd lengur eylönd. ‘Eins
og allir vita byggja Islendingar af-
komu sína á auðlindum hafsins. Á
alþjóðavettvangi höfum við gerst
talsmenn þess að gripið sé til að-
geröa til verndar lffríki sjávar, og
því fögnum við vísbendingum um
að sameiginlega verði brugðist við
alvarlegustu hættum sem steðja að
höfunum, sem felast meðal annars
í þrávirkum eiturefnasamböndum
og kjarnorkuúrgangi.
Við fögnum einnig þeim skuld-
bindingum sem menn hafa hér
sameinast um til að vernda lífverur
hafsins og nýta þær hófsamlega,
og viðurkenningu þess að strand-
rfki hafi rétt á að hagnýta sér veið-
ar þeirra innan skynsamlegra
marka.
Þótt samþykktar séu ályktanir á
ráðstefnu sem þessari verður eng-
in raunveruleg og varanleg breyt-
ing til batnaðar á umhverfisvanda
okkar nema almenningur taki þátt
í lausn hans um gjörvallan heim-
inn. Á Norðurlöndum var liðið ár
sérstaklega tileinkað umhverfis-
vernd. Þá fólst eitt athyglisverð-
asta framtakið í myndun svo-
nefndra „grænna fjölskyldna" í
ýmsum norrænum borgum, en
þær leituðust við að kanna hvern-
ig þær gætu sem best hagað lífi
sínu til gagns fyrir umhverfisvernd
með viðhorf til jákvæðrar lífsstefnu
að markmiði. Þessar grænu fjöl-
skyldur - fullorðnir sem unglingar
og börn - báru saman árangur sinn
að árinu liðnu og mynduðu með
sér vináttuhóp sem stöðugt stækk-
ar.
Fjöldaaðgerðir og skipulögð átök
hafa þegar skilað uppörvandi ár-
angri, þótt ef til vill fari ekki mikið
fyrir honum í stórum heimi. Á ís-
landi búa 0,005% af íbúum jarðar-
innar og þar eru gróðursettar 4
milljónir trjáplantna árlega, sem
samsvarar 16 trjám á hvern íbúa.
Ár hvert eru gróðursettar hér á
landi sextán trjáplöntur á hvern
Islending.
16 HEILBRIGÐISMÁL 1/1992