Heilbrigðismál - 01.03.1992, Síða 31
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ / Steinunn Marteinsdóttir - KRABBAMEINSFÉLAGIÐ / Teikniþjónustan sf.
í huga og á svipuðum fjárhagsgrundvelli. Sighvatur
Björgvinsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra,
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra og Almar Gríms-
son, þáverandi formaður Krabbameinsfélags íslands,
undirrituðu samninginn við athöfn í húsi félagsins að
Skógarhlíð 8 í Reykjavík í lok aprílmánaðar.
Stefnt er að því að bjóða öllum íslenskum konum á
aldrinum frá tvítugu til sjötugs í skoðun á tveggja ára
fresti. Megintilgangur leitarinnar er að rannsaka
frumusýni úr leghálsi kvenna á þessum aldri og rönt-
genmyndir af brjóstum kvenna á aldrinum frá fertugu
til sjötugs. Konur sem koma í skoðun taka þátt í
kostnaði með því að greiða 1500 krónur, en ríkissjóður
greiðir hann að öðru leyti. Gert er ráð fyrir að allt að
32 þúsund konur verði skoðaðar ár hvert og af þeirn
fari 12 til 15 þúsund í brjóstamyndatöku. Skoðað er í
leitarstöðinni í Reykjavík og á meira en fjörutíu heilsu-
gæslustöðvum og sjúkrahúsum utan Reykjavíkur. Þá
taka heilsugæslulæknar og sérfræðingar á höfuðborg-
arsvæðinu einnig þátt í þessu verkefni.
Við upphaf skipulegrar leitar að krabbameini í leg-
hálsi, um miðjan sjöunda áratuginn, var legháls-
krabbamein næst algengasta krabbamein meðal ís-
lenskra kvenna en er nú komið í tíunda sæti. Dauðs-
föllum af völdum sjúkdómsins hefur fækkað mikið og
flestar þeirra kvenna sem nú deyja úr leghálskrabba-
meini hafa aldrei mætt í leit eða mjög óreglulega. Ef
dánartíðnin hefði haldist óbreytt frá því sem var fyrir
aldarfjórðungi hefðu dauðsföll úr leghálskrabbameini
orðið um eitt hundrað fleiri en raun hefur orðið á.
Farið var að taka röntgenmyndir af brjóstum með
skipulegum hætti síðla árs 1987. Fyrstu árin fjölgaði
nýgreindum krabbameinum, eins og við var búist, en
þeim hefur fækkað aftur og voru á síðasta ári um 85,
en voru 133 þegar mest var.
Leitarstarf Krabbameinsfélags fslands hefur vakið
mikla athygli víða um heim og hefur hlotið viðurkenn-
ingu hjá Alþjóða heilbrigðisstofnuninni. Samningur-
Leghálskrabbamein
Aldursstööluö tíöni á ári
miöað viö 100.000 konur
Nýgengi
Dánartiðni
1956 1961 1966 1971 1976 1981 1986
- 60 - 65 - 70 - 75 - 80 - 85 .90
Tídni leghálskrabbameins hefur lækkað mikið síð-
ustu árin.
inn milli Krabbameinsfélagsins og heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins tryggir framhald þessa
merka starfs og sýnir vilja stjórnvalda til að efla for-
varnir, til hagsbóta fyrir íslenskar konur og reyndar
alla þjóðina.
Toyota gefur bíl
Umboðsaðili Toyota á íslandi, P. Samúelsson hf.,
hefur gefið Krabbameinsfélaginu sendibifreið af gerð-
inni Toyota Hi Ace, en verðmæti hennar er á aðra
milljón króna. Bifreiðin, sem er hvít að lit, hefur verið
merkt Krabbameinsfélaginu. Páll Samúelsson, stjórn-
arformaður P. Samúelsson hf., afhenti formanni
Krabbameinsfélags íslands lykla að bifreiðinni við at-
höfn í húsi Krabbameinsfélagsins. Páll sagði við það
tækifæri að umboðið hefði átt velgengni að fagna á
undanförnum árum og vildi láta Krabbameinsfélagið
njóta þess, enda hefði félagið rnikið traust meðal þjóð-
arinnar. Formaður félagsins þakkaði þessa höfðing-
legu gjöf. Hann sagði að þetta væri fyrsta bifreiðin
sem Krabbameinsfélagið eignaðist og hún mundi ör-
ugglega koma að góðum notum í þjónustu við þá fjöl-
þættu starfsemi sem fram fer í húsinu sem þjóðin gaf
félaginu og sjálfri sér.
Mannskæðasta krabbameinið
Á hverju ári eru greind meira en níutíu ný tilfelli af
lungnakrabbameini hér á landi, samkvæmt upplýsing-
um frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands.
Nokkru fleiri karlar en konur fá þennan sjúkdóm en
tíðnin hefur aukist í báðum kynjum. Meira en helm-
ingur sjúklinganna er á aldrinum frá þrítugu til sjö-
HEILBRIGDISMÁL 1/1992 31