Heilbrigðismál - 01.03.1992, Síða 33
HEILBRIGÐISMÁL / Jónas Ragn.-
nieö brjóstakrabbamein. Fyrir þrem árum var veittur
styrkur til aö hefja rannsókn sem hafði þann tilgang
að kanna í fyrsta lagi hvort brjóstakrabbameinssjúkl-
ingar sem væru í B-blóðflokki lifðu skemur en aðrir, í
öðru lagi hvort sjúklingar þar sem brjóstakrabbamein
er í ættinni lifðu skemur, og í þriðja lagi hvernig þessir
þættir tvinnast saman. Nú er veittur styrkur til að
ljúka rannsókninni.
Laufey Tryggvadóttir faraldsfræðingur og sam-
starfsmenn hennar hlutu einnig styrk til að gera upp
heilsusögubanka leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins.
Markmið rannsóknarinnar er að Ijúka fyrsta uppgjöri
á þessum gagnabanka. I því felst að meta upplýsingar
sem safnað var á árunum 1964 til 1989. í framhaldi af
því verður reynt að setja fram skýr markmið með
gagnasöfnuninni og gera tillögur um framhald henn-
ar.
Margrét Snorradóttir yfirlæknir og samstarfsmenn
hennar hlutu styrk til að kanna gildi sérstaks bursta
við töku frumusýna frá leghálsi. Mikilvægt er talið að
nóg af frumum náist frá því svæði í leghálsi þar sem
mestar lfkur eru á því að krabbamein myndist. í því
skyni kom á markað bursti sem farið var að nota hér-
lendis árið 1986. Borin verða saman tvö fjögurra ára
tímabil, fyrir og eftir 1986, til að meta hvort ófullnægj-
andi sýnum og svonefndum fölskum neikvæðum sýn-
um hafi fækkaö.
Reynir Tómas Geirsson læknir og samstarfsmenn
hans hlutu styrk vegna leitar að eggjastokkakrabba-
meini með ómsjá. Athugað verður hvort ómskoðun
um leggöng sé nothæf til að greina æxli í eggjastokk-
um, einkum á frumstigi. Þessi aðferð verður borin
saman við hefðbundna aðferð við leit að sjúkdómn-
um.
Þátttakendur í Heilsuhlaupi Krabbameinsfélagsins í
lok maí voru á öllum aldri.
Sigurður Ingvarsson líffræðingur og Björn Venn-
ström hlutu styrk til kaupa á lofttæmanlegri þurrkun-
arskilvindu sem notuð verður við rannsóknir á viðtök-
um skjaldkirtilshormóns og A-vítamíns og áhrifum
þeirra á frumusérhæfingu og krabbameinsvöxt.
Sigurður Ingvarsson líffræðingur og Rikard Erlands-
son hlutu styrk til kortlagningar á litningasvæði vegna
brjóstakrabbameins o. fl. Markmiöiö með þcssum
rannsóknum er að skilgreina gen á styttri armi litnings
númer 3 í mönnum, en tap á þessu geni stuðlar að
vexti brjóstakrabbameins og annarra krabbameina.
Stefán Aðalsteinsson tölfræðingur og samstarfs-
menn hans hlutu styrk til að athuga tíðni forstigs-
breytinga í leghálsi og mætingu í krabbameinsleit
1964-1990. Kannaður verður fjöldi kvenna með for-
stigsbreytingar leghálskrabbameins eftir aldri og ár-
um, með hliðsjón af fjölda þeirra sem komið hafa í
skoðun í leitarstöðinni. Endanlegt markmið rannsókn-
arinnar er að finna á hvaða aldri er best að hefja skoð-
un og hvort fækka megi skoöunum eftir ákveðinn ald-
ur.
Ánægja með íbúðirnar
Mjög góð reynsla hefur verið af íbúðum fyrir
krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra að
Lokastíg 16 í Reykjavík, en þær voru teknar í notkun
fyrir ári síðan. Það voru Krabbameinsfélag íslands og
Rauði kross íslands sem keyptu þessar íbúðir en Ríkis-
spítalar annast rekstur þeirra. Ibúðirnar, sem eru
tvær, hafa verið mikið notaðar og stundum hefur orð-
ið að vísa fólki frá. Af þessum sökum, meðal annars,
hefur Krabbameinsfélag Reykjavíkur haldið áfram að
veita styrki til dvalar á Sjúkrahóteli Rauða krossins.
Þess má geta að við Leifsgötu í Reykjavík er íbúð sem
keypt var árið 1986 fyrir fjölskyldur krabbameins-
sjúkra barna utan af landi og hefur reynslan af henni
einnig verið mjög góð.
Ibúðirnar við Lokastíg eru ætlaðar fólki af lands-
byggðinni sem þarf að dveljast i Reykjavík í tengslum
við krabbameinsmeðferð. Margir hafa lagt sitt af
mörkum til að gera dvölina léttbærari. Meðal annars
hafa Vaka-Helgafell, Almenna bókafélagið, Forlagið
og fleiri gefið bækur og aðrir gefið ýmsan búnað.
Greinilegt er að almenn ánægja er með íbúðirnar og
að þær hafa bætt úr brýnni þörf. Nú í athugun að
kaupa eina íbúð til viðbótar.
Hlaupid fyrir heilsuna
Metþátttaka var í Heilsuhlaupi Krabbameinsfélags-
ins sem fór fram í fimmta sinn 30. maí. Hlaupið var í
Rcykjavík, á Akureyri, á Egilsstöðum og á Höfn í
Hornafirði. Alls tóku 1470 manns þátt í hlaupinu og er
það meira en nokkru sinni fyrr. Hægt var á velja á
milli mismunandi vegalengda, allt frá 1,5 km til 10 km.
Að þessu sinni markaði heilsuhlaupiö upphaf átaks
sem nefndist „Hreint loft í heila viku" og efnt var til af
Tóbaksvarnanefnd í samvinnu við Krabbameinsfélag-
ið, umhverfisráðuneytið, SIBS og fleiri aðila. -jr.
HEILBRIGÐISMÁL 1/1992 33