Heilbrigðismál - 01.09.1996, Blaðsíða 17

Heilbrigðismál - 01.09.1996, Blaðsíða 17
Tómas Jónasson eða að kynna þau fyrir almenningi. Nú eru vísindastörf hluti af lækna- námi og nauðsynlegur áfangi á leið þess, sem sækist eftir nokkrum frama. Þessi breyting varð upp úr miðri öldinni, en þá komu með hjálp vís- indanna fram lyf og lækningarað- ferðir, sem ekki aðeins var hægt að lengja lífið með heldur einnig að gera það betra. Þetta varð til þess að fjárveitingar til lækingarann- sókna voru stórauknar um allan heim, og alls kyns vísindastarfsemi blómstraði. Þeir bjartsýnustu töldu sig jafnvel sjá fram á, að sjúkdóm- um yrði útrýmt í fyrirsjáanlegri framtíð. Upplýsingar um heilsu og lækningar urðu vinsælt fjölmiðla- efni, og því kepptust fjölmiðlar um að afla sér slíks efnis og birta það, jafnvel þó það væri aðeins á hug- myndastigi, og svo er enn. Það liggur því í hlutarins eðli, að stór hluti þessara vísinda endar á kenn- ingarstigi, en verður aldrei að full- unninni vísindaafurð. Gildi þeirra felst einkum í aukinni þekkingu. Fjöldi vísindarannsókna hefur verið birtur um lifnaðarhætti og þátt þeirra í heilsu og vanheilsu. Flestar slíkar rannsóknir eru þess eðlis, að þær gefa ábendingar, en verða aldrei að sannindum. Þær geta líka gefið mismunandi ábend- ingar um svipað efni, þó vinnu- brögðin uppfylli öll skilyrði um gæði. Hættan við þessar rannsóknir eru sú, að af þeim séu dregnar of víðtækar ályktanir. Því miður hafa margir vísinda- menn notað sér áhugann, sem al- menningur hefur á heilsu sinni, til að vekja á sér athygli og um leið að bæta möguleika sína til fjáröflunar. Augljóst má vera, að mikið af því, sem þannig hefur komið fram, hef- ur ekki uppfyllt þær vonir, sem til þess voru gerðar. Viðbrögðin af hálfu stjórnmálamanna hafa orðið þau, að fjárveitingar til vísinda- starfa hafa verið skornar niður, og hjá almenningi hefur komið vantrú á vísindi. Svo er þáttur sölumanna. Heilsa er nú ein vinsælasta söluvara í vestrænum heimi, og þeir, sem selja hana, nota vísindi óspart til að auglýsa vörur sínar. Þó að alls kyns heilsurækt og það, sem henni til- Vísindi eru ekki, eins og almennt virðist vera útbreidd skoðun, óumbreytanlegar staðreyndir, heldur vinnuaðferðir til þess að leita að staðreyndum eða sannleika. heyrir, kunni að var af hinu góða, hlýtur daður heilsusölumanna við vísindi að koma á þau óorði, vegna þess að þegar þeir auglýsa vöru sína, setja þeir oft fram tilgátur sem vísindalega sannaðar staðreyndir. Þegar svo kemur í ljós, að fyrirheit- in standast ekki, er vísindum en ekki sölumönnum kennt um. Það er skilningskortur á eðli vís- inda og ofnotkun á vísindahugtak- inu, sem hefur valdið því, að þau njóta ekki sömu hylli og þau gerðu fyrir tveimur til þremur áratugum. Vísindamenn þurfa því að gæta varúðar, er þeir birta almenningi rannsóknir sínar og gera ljósa grein fyrir því, á hvaða stigi rannsóknirn- ar eru og hvert stefni með þeim. A sama hátt ættu þeir, sem selja vöru eða þjónustu undir yfirskini vís- inda að vera skyldugir til að gera grein fyrir þeim vísindum, sem liggja að baki fullyrðingum þeirra. Maðurinn er eina lífveran á jörð- inni, sem skynjar tímann. Maður- inn er einnig eina lífveran, sem hef- ur forsendur til að mæla lengd jarð- sögunnar, jafnvel alheimsins, og mælieiningin er sú sama, sem hann mælir sína eigin ævi með. Því er ekki óeðlilegt, að honum finnist tímaskammturinn, sem honum er ætlaður, nokkuð naumur og reyni að stækka hann með öllum tiltæk- um ráðum. Trúarbrögðin hafa fyrir löngu leyst þennan vanda með kenningunni um eilíft líf og því, að okkur verði umbunað „hinurn megin" fyrir skakkaföllin, sem við verðum fyrir í jarðlífinu. Hinum „upplýsta" nútímamanni nægir þetta ekki. Hann hefur glatað trúnni á eilíft líf og umbun „hinum megin", og því heimtar hann, að vísindin leysi þann vanda, sem hann ratar í á bilinu milli fæðingar og dauða, og helst eiga þau að breikka það sem mest, jafnvel í það óendanlega. En það er ekki nóg, heldur heimtum við, að vísindin geri bilið eins þægilegt og kostur er á, það er að segja með sem minnstu af sjúkdómum og streitu. Þegar vís- indin geta ekki uppfyllt þessar kröfur, fljótt og vel, snúa menn baki við þeim og leita á náðir „Hinna", sem lofa kraftaverkum í skjóli ís- lensku þjóðkirkjunnar. Vísindin eru oftast seinvirk. Þó geta vísindalegar uppgötvanir breytt lífinu á jörðinni í einu vet- fangi. Þannig var um uppgötvun sýklalyfja um miðja öldina, og þannig var með atómsprengjuna. Slíkar „vísindasprengingar" eru sjaldgæfar og ef til vill sem betur fer. En þegar við ásökum vísindin um, að þeim hafi ekki tekist að gera jörðina að sælureiti og hafi jafnvel valdið ómældu böli, megum við ekki gleyma því, að vísindin eru mannanna verk, og afurðir þeirra nýtast því aðeins, að við berum gæfu til að nota þau til heilla en ekki til bölvunar. Árni Björnsson er sérfræðingur í skitrðlækningum og var yfiriæknir lýtalækningadeildar Landspítalans. Þetta er grein sem Árni skrifaði fyrir „Bók Davíðs" sem kom út í haust. HEILBRIGÐISMÁL 3/1996 17

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.