Heilbrigðismál - 01.09.1996, Blaðsíða 18

Heilbrigðismál - 01.09.1996, Blaðsíða 18
Siguröur Öm Brynjólfsson Lystarstol og lotugræðgi Röskun á matarvenjum Grein eftir Eirík Örn Arnarson Þeir sem greinast með lystarstol og lotugræðgi eiga það sameigin- legt að vera gagnteknir af hugsun um mat. Líkamsímyndin er brengl- uð, þannig að þeim finnst ummál líkamans vera stærra en það í raun- inni er, þeir eru sannfærðir um að þeir þurfi að léttast og ákveðnir í að halda líkamsþyngd innan marka sem þeir setja sér og þvinga sig til að halda. Imynduð ofþyngd Lystarstol er kvilli sem hrjáir að- allega konur og einkennist af veru- legu þyngdartapi og næringar- Bjögun á líkamsímynd er ein- kennandi fyrir lystarstoi. Þrátt fyr- ir að stúlkurnar séu aðeins skinn og bein finnst þeim þær vera of feitar. skorti vegna þess að fólk forðast að borða orkuríkan mat. Uppsölur og tilraunir til að hreinsa líkamann á annan hátt, t.d. með stólpípum og hægðalyfjum, eru áberandi hjá þeim sem þjást af lystarstoli. Yfir- drifin líkamsrækt er stunduð til þess að léttast. Hjartsláttur er oft óreglulegur. Hárvöxtur getur verið afbrigðilegur. Þegar fólk léttist aðlagar líkam- inn sig að breyttri líkamsþyngd; það hægir á starfsemi og efnaskipt- um líkamans, hitastig hans fellur og því er konum með lystarstol oft kalt. Tíðir hætta vegna þess að svo grannur líkami getur ekki alið barn. Andúð á mat eykst í réttu hlutfalli við hve mikið konan hefur lést. Lystarstol leiðir til þess að við- komandi léttist meira en eðlilegt getur talist og afstaða til þess að borða og þyngjast verður neikvæð. Þegar því er halclið fram að konan sé of grönn útilokar hún þau rök og gerir sér í hugarlund að hún sé í eðlilegri þyngd eða of þung. Konur með lystarstol leyna því hve grann- ar þær eru með því að klæðast víð- um fötum. Þá reyna þær að velja sér hálfgerða spéspegla sem sýna þær breiðari en þær eru. Þær stúlkur sem þjást af lystar- stoli hafa mikla þörf fyrir að hreyfa sig, jafnvel þó þær séu þreyttar og aðframkomnar. Þær sem haldnar eru lystarstoli ganga að meðaltali 12-14 kílómetra á dag en venjuleg kona gengur nær helmingi styttra. Lystarstol ágerist hægt og rólega og getur tekið eitt til tvö ár að koma fram. Nákomnir átta sig því ekki á vandanum fyrr en um sein- an. Foreldrar taka stundum fyrst eftir því að eitthvað hefur farið úr- skeiðis þegar þeir skoða nokkurra mánaða gamlar myndir af barni sínu. Viðbrögð fjölskyldu verða oft mikil og einkennast af kvíða. Þegar þannig er komið er hyggilegast að leita til heimilislæknis sem vísar áfram til fagmanna sem fást við lystarstol. Flestar eiga stúlkurnar erfitt með að viðurkenna vandamálið. Það er ekki fyrr en í lengstu lög að þær fara í meðferð, enda finnst þeim ekki vera neitt að sér. Þeim finnst þyngd sín og útlit eðlilegt og sama gildir um mikla þörf fyrir hreyf- ingu. Meðferðar er oftast leitað að undirlagi foreldra eða nákominna. Stúlkurnar ó^tast mest af öllu að fitna og að þær muni tútna út ef þær borði eðlilega. Þær eru orðnar vanar svo litlu magamáli að þeim finnst óþægilegt að borða og vita ekki hve mikið er óhætt að borða. Stúlkurnar verða matvandar og borða aðeins vissar fæðutegundir. Það felst þversögn í því að þeim er umhugað um að þeir sem þær búa með borði vel, þó að þær svelti sjálfar heilu hungri. Einnig óttast 18 HEILBRIGÐISMÁL 3/1996

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.