Heilbrigðismál - 01.09.1996, Blaðsíða 34

Heilbrigðismál - 01.09.1996, Blaðsíða 34
Tómas Jönasson Aukin lyfjaneysla getur aukið lífsgæði fólks að vissu marki segir Róbert Melax sem á hlut í tveimur af tíu nýjum lyfjabúðum og lagði allt undir þegar frelsi í lyfjasölu var aukið Nafn Róberts Melax kom fyrst fram í fjölmiðlum haustið 1995 þegar hann, ásamt öðrum, mótmælti frest- un Alþingis á gildistöku nýrra lagaákvæða um aukið frelsi í lyfsölu. Þegar ákvæðin höfðu tekið gildi, í apríl 1996, opnaði hann Lyfju, í félagi við Inga Guðjónsson, sem er lyfjafræðingur eins og Róbert. Nokkrum mán- uðum síðar opnuðu þeir aðra lyfjabúð inni í stórmark- aði, í samvinnu við Hagkaup. Segja má að Róbert Mel- ax hafi verið ókrýndur konungur nýrra lyfsala, þeirra sem ekki fá inngöngu í Apótekarafélag Islands. „Með gildistöku lagaákvæðanna var afnumin þriggja alda einokun á lyfjasölu," segir Róbert, „en litlu mátti muna að þessar breytingar hefðu kafnað í fæð- ingu." Er hann þá ekki ánægður með það hve vel al- menningur hefur tekið frelsinu? „Jú. Aður en við ákváðum að leggja allt okkar undir til að koma Lyfju á fót gerðum við áætlanir og þær hafa staðist og vel það," segir Róbert og honum finnst að viðbrögð al- mennings bendi til að þessi breyting hafi verið löngu tímabær. Haft hefur verið eftir honum að gamla kerfið hafi leitt til offjárfestingar. Er ekki líklegt að nýja kerfið geri það einnig, vegna þess hve mikið fé hefur verið lagt í nýjar lyfjabúðir? „Nei, ekki á sama hátt. Þeir sem fengu úthlutað lyfsöluleyfi í gamla kerfinu þurftu að taka á sig fjárhagsskuldbindingar sem námu allt að 50- 100 milljónum króna, meðal annars vegna stórra hús- eigna. Nú er hægt að hefja rekstur lyfjabúðar fyrir brot af þessari upphæð. Sjálfsagt eiga einhverjar lyfjabúð- ir eftir að leggja upp laupana, en það er ekkert athuga- vert við það frekar en við gjaldþrot annarra versl- ana." Hvaða lyfjaverslanir eru í mestri hættu? „Þær sem eru á óheppilegum stöðum. Lyfjaverslanir þurfa annað hvort að vera nálægt stofnunum sem veita heilbrigðis- þjónustu eða þar sem mikil umferð fólks er, til dæmis í tengslum við verslunarmiðstöðvar. Apótek eiga ekki að vera ein sér, eins og mjólkurbúðir og fiskbúðir voru hér áður fyrr." Róbert telur að eftir nokkur ár verði tvær til fjórar verslanakeðjur ráðandi á lyfjamarkað- num, en einnig önnur hefðbundin 'apótek. Reglum um lyfjaverð hefur verið breytt þannig að hlutur neytenda er aukinn og segja má að ríkið taki til sín hluta af þeim afslætti sem neytendur voru fyrst í stað látnir njóta. Er ekki orðið þrengra um samkeppni í verði? „Jú, en við reiknuðum með þessum viðbrögðum af hálfu ríkisins sem nú lætur neytendur greiða 38-39% af verði lyfja í stað 33% áður. Við gerum ráð fyrir að í staðinn verði samkeppni um að bjóða sem besta þjón- ustu." Eitt helsta sérkenni Lyfju er langur afreiðslutími, mikið er af sjálfsafgreiðsluvörum og greiður aðgangur er að lyfjafræðingi og hjúkrunarfræðingi. Þetta hafa sumar aðrar lyfjabúðir einnig tekið upp. „Við vildum ganga enn lengra," segir Róbert, „og hafa algengustu lausasölulyf í sjálfvali, eins og tíðkast í nágrannalönd- unum, en það var ekki samþykkt." Hann bendir á að allt verslunarsvæðið er mun opnara en áður hefur þekkst í apótekum. Margir stjórnmálamenn höfðu áhyggjur af því að fjölgun lyfjabúða og heimild til að auglýsa lyf myndi leiða til aukinnar lyfjanotkunar. Er þetta ástæðulaus ótti? „Að því er varðar lyfseðilsskyld lyf er þetta ekki líklegt. Það er í verkahring lækna að ávísa slíkum lyfj- um en ekki apóteka. Islendingar nota ekki eins mikið af lyfjum og sumar aðrar þjóðir. Þess vegna er senni- lega eitthvað um það að fólk sem þyrfti á lyfjum að halda, og á rétt á þeim, fái þau ekki. Með það í huga að lyf eru til að bæta líðan má segja að aukin lyfjaneysla geti aukið lífsgæði, að minnsta kosti að vissu marki. Þá er hugsanlegt að sala lausasölulyfja aukist vegna aug- lýsinga, en ef til vill er það á kostnað dýrari lyfja," seg- ir Róbert. Að hans mati geta auglýsingarnar einnig orðið til þess að auka þekkingu neytenda á lyfjum, en skort hefur á fræðslu um þau. Hvernig hefur reksturinn gengið? Verðið þið Ingi í efstu sætunum á skattskránni í sumar? „Nei, það er langt frá því. Enda þótt viðtökur almennings hafi verið betri en við þorðum að vona erum við ekki orðnir ríkir af þessu - hvað sem síðar verður," segir Róbert Melax. Þegar hann var spurður hvort þeir félagarnir ætli að opna fleiri lyfjabúðir á næstunni sagðist hann ekki vilja útiloka að svo yrði, það kæmi í ljós. -F- 34 HEILBRIGÐISMÁL 3/1996

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.