Heilbrigðismál - 01.09.1996, Blaðsíða 19

Heilbrigðismál - 01.09.1996, Blaðsíða 19
þær að vera vaktaðar á meðan þær borða. Ottinn beinist oft gegn ákveðnum mat, til dæmis feitmeti, sósum og öllu sem er orkuríkt. Áhersla á grannan vöxt Ástæður lystarstols geta verið margvíslegar. Oft er um að ræða erfiðleika á unglingsárum eða hjónabandserfiðleika foreldra. Tíðir hafa stundum hafist óvenju snemma. Stúlkunum hefur verið gefið of mikið að borða í æsku. Þær eru gjarnan samviskusamar, þeim vegnar vel í skóla og þær reyna að ná fullkomnun. Væntingar foreldra eru meiri en stúlkunum finnst þær geta staðið undir. Tíska er talin hafa haft mikil áhrif, til dæmis var fyrirsætan Twiggy með hið dæmigerða útlit sem sést í lystarstoli, tágrönn með mjóslegið og kinnfiskasogið andlit. Sú kvenímynd sem nú nýtur hylli Það felst þversögn í því að þeim konum sem þjást af lystarstoli er umhugað um að makar þeirra borði vel, þó að þær svelti sjálfar heilu hungri. er íþróttalegt útlit og ólík því sem kvengyðjur fyrri ára höfðu, t.d. Marilyn Monroe. Lystarstol er al- gengt meðal dansara og tískusýn- ingafólks sem leggja áherslu á grannan vöxt. Margþætt einkenni Einkenni lystarstols koma oftast fram fyrir 25 ára aldur. Engin önn- ur læknisfræðileg eða sálfræðileg skýring er á þyngdartapinu. Það er ekki fylgifiskur annarra kvilla, svo sem truflana á hormónastarfsemi eða krabbameins. Einhverjir fjórir eftirtalinna þátta eru til staðar: 1. Tímabundin ofvirkni. Konurnar hreyfa sig gjarnan mikið, láta sér ekki nægja að vera í leikfimi þrisv- ar í viku og eru í líkamsrækt aðra daga líka. 2. Brengluð líkamsímynd. Dóm- greind á eðlilegu útliti raskast. 3. Forsaga um offitu er oft til staðar. 4. Tíðablæðingar stöðvast. 5. Truflun á innri áreitum svo sem að finna ekki til þreytu eftir áreynslu eða finna ekki til hungurs. 6. Kreddur varðandi mat. 7. Oeðlileg hræðsla við offitu. 8. Lítill eða lélegur svefn. . Algengast á unglingsárum Lystarstol er mun algengara meðal kvenna en karla. Tölur frá Bretlandi og Bandaríkjunum benda til þess að 1-2% stúlkna á aldrinum 12-18 ára eigi við lystarstol að stríða og flestar eru þær á aldrinum 16-18 ára. Þó hefur lystarstol fundist hjá kvenfólki allt að fimmtugu. Gerð var rannsókn á tíðni lystar- stols og lotugræðgi á nemendum í læknadeild Háskóla Islands árið 1988. Greiningarlistar voru lagðir fyrir 358 nemendur, 264 konur og 94 karla. Sjö töldust vera með rösk- un á matarvenjum, sex (1,7 af hundraði) sem uppfylltu greining- arskilyrði fyrir lotugræðgi og einn fyrir lystarstol. Á undanförnum árum virðist nýgengi röskunar á matarvenjum hafa aukist. Svissnesk rannsókn leiddi í ljós fjórfalda aukningu á nýgengi lystarstols meðal kvenna á aldrinum 12-25 ára á tímabilinu frá 1956 til 1975. Svipuð aukning hefur einnig komið í ljós í öðrum vest- rænum þjóðfélögum. Arangursrík meðferð Áður en til meðferðar kemur hef- ur venjulega verið reynt að hafa áhrif á stúlkurnar heima fyrir með því að reka á eftir þeim og hvetja þær til að borða. Eftir innlögn hefur ýmiss konar meðferð verið reynd, svo sem að gefa næringu í æð eða fæða stúlkurnar með slöngu. Einn- ig hefur verið reynt að gefa lyf sem eiga að örva matarlyst. Slík með- ferð hefur yfirleitt ekki borið mik- inn árangur. Einnig hefur ýmiss konar sálræn meðferð verið reynd, svo sem hópmeðferð og fjölskyldu- meðferð. Hugræn atferlismeðferð hefur reynst árangursrík. Meðferðin fer að jafnaði fram á spítala þar sem stúlkan er látin taka ábyrgð á matarræði sínu. Hún er frædd um hvaða einkenni eru eðli- leg í kjölfar þess að hafa soltið. Lögð er áhersla á að viðkomandi þjáist af sulti. Meðferðin byggist á því að ná réttri þyngd með því að gera matarvenjur eðlilegar. Einnig er reynt að hafa áhrif á hugsanir. Það sem einkennir hugsanagang í lystarstoli er „annaðhvort eða" hugsanir, með öðrum orðum virðist HEILBRIGÐISMÁL 3/1996 19

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.