Heilbrigðismál - 01.09.1996, Qupperneq 29

Heilbrigðismál - 01.09.1996, Qupperneq 29
þeir sem eru líkamlega veikir séu líklegri til að fá þunglyndi en lík- amlega frískir. Sú tilgáta hefur reyndar verið sönnuð með öðrum hætti. Þá minna þessar niðurstöður á að sitt er hvað einmanaleiki og þunglyndi. Sá sem er einmana þarf alls ekki að vera þunglyndur. Sé borin saman dánartíðni þung- lyndra á aldrinum frá 75 ára til 81 ára kemur í ljós að fólk með þung- lyndi lifir að meðaltali skemur en þeir sem ekki hafa neina geðsjúk- dóma. Mun fleiri þunglyndir dóu á ofangreindu aldursbili en samsvar- andi hópur sem ekki hafði neina geðsjúkdóma. Ahættan á að deyja er um 35% meiri hjá þunglyndum konum en konum sem ekki hafa fengið geðsjúkdóma. Meðal karla er munurinn enn meiri eða 86%. Þetta er að mörgu leyti athyglis- verð niðurstaða og ekki hefur fund- Þegar hausta fer að í lífi fólks gera ýmsir sjúkdómar vart við sig. Tí- undi hver áttræður íslendingur er haldinn þunglyndi. Þessi sjúk- dómur spillir lífsgæðum og eykur dánartíðni. ist á henni góð skýring. Þó liggur beint við að álykta að þar sem þunglyndi er tengt lélegri líkam- legri heilsu geti það skýrt hærri dánartíðni að hluta. Nýgengisrannsóknir á þunglyndi eru tiltölulega fáar því þær eru erf- iðar í framkvæmd og dýrar. Fylgj- ast þarf með sama hópnum um árabil til að geta talið hve mörg ný sjúkdómstilfelli koma fram. Auk þess liggur ekki alveg í augum uppi hvenær um nýjan sjúkdóm er að ræða, einkum þegar um aldraða er að ræða. Er það til dæmis nýr sjúkdómur ef sá sem fékk eitt þunglyndiskast um tvítugt fær annað kast um áttrætt? Á íslandi er nýgengi þunglyndis á aldrinum frá 74 ára til 87 ára 0,5-0,7 tilfelli á ári miðað við hverja hundrað karla, en 1,0-1,2 á ári miðað við hverjar hundrað konur. Þetta endurspeglar hversu algengt þunglyndi er í þess- um aldurshópi, um það bil eitt nýtt sjúkdómstilfelli á hundrað menn á ári, auk allra þeirra fjölmörgu sem fá þunglyndiskast á þessum aldri en hafa verið með sjúkdóminn áð- ur. Niðurstöður benda til þess að tíðni þunglyndis í ellinni sé svipuð hér á landi og í öðrum löndum. Þunglyndi er algengt meðal aldr- aðra, milli 8 og 10% áttræðra hafa sjúkdóminn á hverjum tíma, og fólk getur fengið sitt fyrsta þung- lyndiskast á háum aldri. Þessi sjúk- dómur hefur í för með sér hækkaða dánartíðni. Þar sem hann er í flest- um tilfellum læknanlegur er mjög mikilvægt að greina hann fljótt og hefja meðferð sem fyrst. Greining sjúkdómsins er alls ekki auðveld, sérstaklega ekki á efri árum þar sem heilabilunareinkenni (elliglöp) blandast oft inn í sjúkdómsmynd- ina. 1 þessu sambandi má rifja upp að samkvæmt áðurnefndri rann- sókn hafa um 15% 87 ára íslendinga erfið elliglöp og önnur 15% eru með væg elliglöp. Við meðferð þunglyndis er heil- brigðisstarfsfólki mikill vandi á höndum, því að lyfjameðferð er stundum mjög dýr. Þess vegna er sterk krafa um að aðeins þeir sem sem hafa gagn af meðferð fái hana. Faraldsfræðin hefur þó sýnt að fjöldi sjúklinga með þunglyndi er slíkur að ekki er óeðlilegt að kostn- aður við lyfjameðferð sé nokkuð hár. Þótt fjarhagur heilbrigðiskerfis- ins hafi verið knappur undafarin ár má það ekki gerast að hætt verði að stunda faraldsfræðilegar rannsókn- ir hér á landi. Rannsóknir á hugs- anlegum áhættuþáttum og erfða- þáttum þunglyndis og annarra geð- sjúkdóma í ellinni eru þar verðug verkefni. Helstu heimildir: Hallgrímur Magnússon: Mental health of octogenarians in Iceland. Acta Psychiatrica Scandinavica, 1989: 79 (suppl. 439). Hallgrímur Magnússon og Tómas Helgason: Sinnslidelsens epidemiologi hos eldre i Island. Læknablaðið 1981 (fylgirit 16). Jón G. Stefánsson, Eiríkur Líndal o.fl.: Per- iod prevalence of specific mental disorders in an Icelandic cohort. Soc. Psychiatr. Epidemiol. 1994: 29: 119-125. Hallgrímur Magnússon læknir er sérfræðingur í geðlækningum en starf- ar sem heilsugæslulæknir í Crundar- firði. ítarlegri grein um faraldsfræði þunghjndis aldraðra hefur hirst í tíma- ritinu Öldrun. Hallgrímur hefur áður skrifað í Heilbrigðismál um elliglöp (3-4/1994) og heilsugæslu í Noregi (1/1995). HEILBRIGÐISMAL 3/1996 29

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.